Öryggi á báða bóga
Leiguskjól býður upp á einfaldar lausnir fyrir leigjendur og leigusala. Fyrirspurnir má senda á netfangið samband@leiguskjol.is.

Leiguskjól býður upp á einfaldar lausnir fyrir leigjendur og leigusala. Fyrirspurnir má senda á netfangið samband@leiguskjol.is.

Á Igloo, leiguvef Leiguskjóls, getur þú allt í senn auglýst eignina þína, leitað þér að heimili og átt samskipti við leigusala með einföldum hætti.
Skjöl og umsóknir eru undirrituð og vistuð á sama stað. Leigusamningar sem gerðir eru í gegnum Igloo eru svo sjálfkrafa skráðir hjá HMS – sem auðveldar umsókn um húsnæðisbætur.
Leiguskjól er góður kostur fyrir báða aðila:
Aðgangur að stórum leiguvef Igloo
Engin þörf á tryggingarfé við upphaf leigu
Mánaðargjald í stað þess að binda fjármuni í tryggingarfé
Leiguskjól sér um ábyrgðina
Aukin vernd fyrir báða aðila
Einfaldari umsýsla og samskipti
Faglegur stuðningur ef vandamál koma upp á leigutímanum
Þegar þú leigir íbúð þarftu jafnan að reiða fram tryggingafé, sem í sumum tilfellum jafngildir leigu í tvo til þrjá mánuði. Ekki aðeins er þetta fremur stór biti að kyngja, heldur hefur þú ekki aðgang að peningunum meðan á leigutímabilinu stendur.
Þess í stað greiðir þú mánaðargjald og Leiguskjól sér um að ábyrgjast þig. Þú getur því nýtt peningana sem alla jafna færu í tryggingu, t.d. í að koma þér fyrir á nýja heimilinu eða í íbúðasparnað. Einnig getur þú verið viss um að leigusali haldi tryggingafénu ekki eftir að ástæðulausu.
Það er að mörgu að huga þegar á að leigja eignina sína út og mikilvægt að vera með tryggingarnar á hreinu.
Vörður býður upp á tvær sérsniðnar tryggingar fyrir leigusala, annars vegar leigutapstryggingu og hins vegar leigutryggingu í samstarfi við Leiguskjól.
Eins og nafnið gefur til kynna, ver tryggingin leigusala fyrir tapi á leigutekjum, t.d. vegna leka, eldsvoða eða innbrota í eignina. Bæði einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt sér trygginguna.
Leigutrygging Leiguskjóls er ætluð einstaklingum í ákveðinni þjónustuleið Leiguskjóls og bætir tjón sem leigjandi veldur á eigninni og er umfram eðlileg not.

Leigusamningur er samningur á milli leigusala og leigjanda.
Á samningnum koma fram allar helstu upplýsingar, eins og leigutími og hversu há leigan er. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um ástand eignar og brunavarnir.
Ef íbúð er leigð í gegnum Igloo er samningurinn sjálfkrafa skráður hjá HMS – sem auðveldar leigjendum að sækja um húsnæðisbætur.
Í sumum tilfellum er húsaleiga verðtryggð, sem þýðir að upphæðin breytist í takt við þróun vísitölu – en er ekki föst út samningstímann.
Þetta þarf að koma skýrt fram í leigusamningnum, auk upplýsinga um hvaða vísitala er notuð og hversu oft leigan er endurreiknuð.
Ef leigusamningur gildir skemur en 12 mánuði er ekki hægt að tengja hann við vísitölu.
Áður en þú flytur inn í nýja leiguíbúð er gott að gera úttektarskýrslu.
Ef ágreiningur kemur upp sér Leiguskjól um að húsaleigulögum sé fylgt og tryggir þannig bæði réttindi leigjenda og leigusala.
Leiguskjól greiðir ekki út tryggingafé nema það liggi fyrir staðfesting á vanskilum eða tjóni – sem þýðir að leigusalar geta ekki haldið eftir tryggingafé að ástæðulausu.
Ef upp koma álitamál eða ágreiningur er hægt að leita til starfsfólks Leiguskjóls.
Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur frá HMS sem ætlaðar eru til að aðstoða fólk á leigumarkaði.
Upphæð bóta fer m.a. eftir því hversu margir búa á heimilinu, hversu háar tekjur þeirra eru og hversu há leigan er.
Sótt er um húsnæðisbætur á island.is.