Endurkröfur vegna kortafærslna
Ef þú kannast þú ekki við færslu eða fékkst vöru ekki afhenta gætir þú átt rétt á endurgreiðslu.

Ef þú kannast þú ekki við færslu eða fékkst vöru ekki afhenta gætir þú átt rétt á endurgreiðslu.

Ef þú tekur eftir óvenjulegri kortafærslu sem þú kannast ekki við eða hefur greitt með kortinu þínu fyrir vöru eða þjónustu sem ekki skilaði sér þá getur þú átt rétt á að fá færsluna endurgreidda samkvæma endurkröfureglum Visa.
Óþekkt kortafærsla: Hafðu strax samband við Arion í síma 444 7000 til að loka kortinu áður en endurkröfuferli hefst.
Athugasemd við færslu sem þú kannast við: Hafðu fyrst samband við söluaðila til að reyna að leysa málið, t.d. ef vara skilaði sér ekki eða þú vilt segja upp áskrift.
Kaupskilmálar: Skilmálar sem samþykktir voru við kaup ákvarða hvort hægt sé að óska eftir endurgreiðslu.
Endurkrafa vegna svika: Endurkröfu á forsendu kortasvika verður hafnað ef færsla var staðfest með auðkenningu í síma, snjallúri, appi, netbanka, PIN númeri eða sambærilegum hætti, eða ef seljandi getur sýnt að kortaeigandi sjálfur framkvæmdi kaupin.
Réttar forsendur og nauðsynleg gögn: Ef endurkröfu er hafnað er ekki hægt að hefja nýtt endurkröfuferli á nýjum forsendum. Því er mikilvægt að gera strax endurkröfu á réttum forsendum og láta öll nauðsynleg gögn fylgja.
Nauðsynlegt er að reyna að leysa málið beint við söluaðila áður en hægt er að framkvæma endurkröfu á færslu sem þú áttir hlutdeild að. Til dæmis ef vara skilaði sér ekki eða þú vilt segja upp áskrift.
Kannaðu skilmála söluaðila til þess að sjá hvort þú átt rétt á endurgreiðslu.
Ef málið leysist ekki eftir samskipti við söluaðila og þú hefur gengið úr skugga um að þú eigir rétt á endurgreiðslu skaltu gera endurkröfu.


Afrit af samskiptum við söluaðila
Afrit af pöntunar eða bókunarstaðfestingu
Afrit af skilmálum til að hægt sé að sýna að afbókun var framkvæmd í samræmi við skilmála
Önnur gögn eftir því sem við á
Gera þarf endurkröfu innan 120 daga frá færsludagsetningu eða þeim degi sem vara eða þjónusta átti að vera afhent.
Það er mikilvægt að fylgjast vel með færslum á kortinu sínu. Endurkröfuferlið tekur mið af að hámarki 35 færslum svo það skiptir máli að bregðast fljótt við ef eitthvað er athugavert.
Mikilvægt er að allar tiltækar upplýsingar og gögn komi fram strax til að tryggja að réttur til endurkröfu falli ekki niður.
Ferlið getur tekið frá nokkrum dögum upp á allt að 10 vikur frá því að gögn berast. Tímalengd ræðst af eðli máls og þeim gögnum sem er framvísað. Mál geta dregist lengur ef söluaðili mótmælir endurkröfubeiðni.
Ef endurgreiðsla á kortafærslu fæst ekki í gegnum endurkröfuferli kortsins og viðskiptavinur er ósáttur við svör bankans þá getur hann nálgast upplýsingar um hvernig hann kemur kvörtun á framfæri á vefsíðunni Réttarúrræði viðskiptavina.
Á þeirri síðu eru jafnframt upplýsingar um úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, en nánari upplýsingar um þá úrskurðarnefnd má finna á nefndir.is.