Það er einfalt að millifæra til útlanda


Alla jafna tekur það 2 til 3 virka daga fyrir erlenda millifærslu að berast á reikning viðtakanda.
Það getur verið misjafnt hvað það kostar að millifæra til útlanda.
Allar EUR greiðslur eru fríar innan landa EES og Evrópusambandsins.
Útsend greiðsla í annarri mynt kostar 895 kr. og innkomin greiðsla kostar 650 kr.
Greiðslur í EUR innan Evrópu eru almennt gjaldfrjálsar, að undanskildum greiðslum til Bretlands og Sviss. Ef greiðsla er send utan Evrópu geta erlendir bankar hins vegar dregið kostnað frá greiðslunni, en sá kostnaður fer eftir gjaldskrá hvers og eins banka. Arion banki hefur ekki upplýsingar um kostnað sem kann að falla til hjá erlendum bönkum við millifærslur til mismunandi landa.
Hægt að velja að greiða allan erlendan bankakostnað í netbanka. Þá greiðir þú fast gjald aukalega (nú 5.000 kr.), sem er ætlað að dekka mögulegan kostnað sem erlendir bankar kunna að rukka. Í einhverjum tilfellum er þó ekki hægt að tryggja að gjaldið sem greitt er dekki allan kostnað, þar sem Arion banki hefur ekki stjórn á gjaldtöku erlendra banka.
Þegar millifært er á nýjan viðtakanda þar að fara í gegnum nokkur skref. Hafa þarf samband við bankann til þess að opna á möguleikann til að eiga viðskipti við aðra banka erlendis. Síðan þarf á að stofna Viðskiptatengsl. Það gerir þú í netbankanum undir Erlend viðskipti.
Til að geta millifært í netbankanum til útlanda þarf að byrja á því að hafa samband við bankann og biðja um að opnað sé fyrir gjaldeyrisviðskiptakerfið. Þú getur haft samband í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið arionbanki@arionbanki.is.
Nauðsynlegar upplýsingar til að stofna viðtakanda:
Nafn og heimilisfang viðtakanda (götuheiti, póstnúmer, borg og land)
IBAN númer viðtakanda (Evrópa) eða reikningsnúmer (utan Evrópu)
Nafn og SWIFT kóði fjármálastofnunar viðtakanda
Þegar búið er að stofna nýjan viðtakanda getur það tekið allt að 30 mínútur að fá hann samþykktan. Ef mikið liggur á að fá samþykki er hægt að senda okkur tölvupóst á netfangið foreignpayments@arionbanki.is.
Þegar búið er að stofna viðtakandann og samþykki liggur fyrir getur þú síðan framkvæmt millifærsluna undir Viðskiptatengsl í netbanka eða Millifærslur í Arion appinu.
SWIFT er staðlað samskipta- og fyrirspurnakerfi sem þjónar fjármálastofnunum um allan heim og er öruggur máti til að senda greiðslur á milli landa.
SWIFT kóði Arion banka er: ESJAISRE
