Góð ráð fyrir fríið
Til að njóta ferðalagsins sem best er gott að undirbúa sig vel og tryggja að öll helstu atriði séu í lagi áður en lagt er af stað.

Til að njóta ferðalagsins sem best er gott að undirbúa sig vel og tryggja að öll helstu atriði séu í lagi áður en lagt er af stað.

Í frííinu er mikilvægt til að hlaða batteríin, slaka á og njóta þess að ferðast – hvort sem leiðin liggur innanlands eða utan. Til að hámarka ánægjuna er hins vegar mikilvægt að undirbúa sig vel áður en lagt er af stað.
Undirbúningurinn þarf þó ekki að vera flókinn – smá skipulag getur gert gæfumuninn. Þannig færðu meira rými til að njóta samveru, upplifa nýja staði og safna góðum minningum í stað þess að fást við óvænt vandamál.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.
Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.
SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.