Betri kjör og fríðindi fyrir ungt fólk
Við vitum að markmið ungs fólks eru ólík en okkar markmið er að einfalda þeim lífið og aðstoða þau við að ná þeim árangri sem þau stefna að.

Við vitum að markmið ungs fólks eru ólík en okkar markmið er að einfalda þeim lífið og aðstoða þau við að ná þeim árangri sem þau stefna að.

Hjá okkur greiðir þú ekkert árgjald og engin færslugjöld af debetkortum og færð Bláa kortið ókeypis.
Því til viðbótar greiðir þú minna fyrir bíómiðann, færð 50% afslátt í sund og sérkjör á æfingakortum hjá World Class!

Við vitum að það er risastórt skref að kaupa sína fyrstu íbúð.
Þess vegna er mikilvægt að kynna sér hvaða leiðir eru í boði og skoða hvernig þú getur nýtt þér þær.
En hafðu engar áhyggjur, við leiðum þig í gegnum ferlið – allt frá hugmynd og fram að fyrstu afborgun.


Ertu að byrja að safna upp í útborgun? Þá er reglulegur sparnaður málið.
Það eru fjölmargar leiðir í boði, en okkar besta ráð er að setja sparnaðinn í áskrift sem fyrst.
Mundu svo að þú getur notað viðbótarlífeyrissparnaðinn skattfrjálst til að auðvelda þér fasteignakaupin.

Viðbótarlífeyrissparnaður er einföld og snjöll leið til að hækka launin þín. Þú leggur til 2 eða 4% af laununum þínum og færð í staðinn 2% launahækkun frá vinnuveitanda.
Kynntu þér málið!
Framfærslulán er í formi yfirdráttarheimildar á sérstökum framfærslureikningi.
Kostnaður við framfærslulán er í formi vaxta og eru þeir mun lægri en á almennum yfirdráttarheimildum.
Þú getur gengið frá stofnun framfærslureiknings í næsta útibúi en eftir það getur þú sótt um framfærslulán í netbanka Arion banka. Skilyrði fyrir framfærsluláni er lánsloforð frá Menntasjóði Námsmanna.
Lánsfjárhæð er að hámarki kr. 3.000.000 með fasteignaveði eða kr. 1.000.000 án trygginga.
Þú getur valið á milli þess að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán.
Til að létta greiðslubyrði í upphafi þá er mögulegt að velja um að greiða eingöngu vaxtagjalddaga í allt að 24 mánuði frá lántöku.
Lánstími stjórnast af veði, verðtryggingu og vaxtagjalddögum.