
Það er aldrei of seint að byrja að spara
Upphæðin þarf ekki að vera há, enda gerir margt smátt eitt stórt.

Upphæðin þarf ekki að vera há, enda gerir margt smátt eitt stórt.
✓ Þú þarft ekki að muna eftir að leggja fyrir
✓ Sparnaður í áskrift er hagkvæm leið til að eignast hluti
✓ Það verður auðveldara að mæta óvæntum útgjöldum
✓ Sparnaðurinn sér um sig sjálfur
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval sparnaðarreikninga – þú velur þann reikning sem hentar þér best.
Að vera með áskrift í sjóðum er einföld og góð leið til að byggja upp sparnað.
Að greiða í lífeyrissparnað er snjöll leið til að hækka launin og spara um leið.

Fríðindareikningurinn er óbundinn og peningurinn því alltaf laus til notkunar. Vextir eru greiddir af höfuðstól vikulega, sem þýðir að sparnaðurinn þinn vex hraðar en nokkru sinni fyrr!
Það er mikilvægt að byrja snemma að leggja grunn að fjárhagslegu öryggi barna sinna. Við bjóðum upp á lausnir sem forráðamenn geta nýtt til að byggja sterkan grunn fyrir framtíð barna sinna.


Það er einfalt að stofna reglulegan sparnað í appinu – upphæðin þarf ekki að vera há, enda gerir margt smátt eitt stórt. Svo er skemmtilegt að fylgjast með sparnaðinum vaxa. Í appinu hefur þú einnig góða yfirsýn og getur framkvæmt allar helstu aðgerðir sem tengjast sparnaði.

Víðast hvar má núorðið greiða með kortum og gjaldeyrir því nánast orðinn óþarfi á ferðalögum. Stundum er þó skynsamlegt að vera með gjaldeyri á sér til öryggis. Skemmst er að minnast óvænts rafmagnsleysis á Spáni og í Portúgal sem varð til þess að ekki var hægt að greiða með kortum. Einnig geta komið upp aðstæður þar sem kortið bara virkar ekki eða söluaðilar vöru eða þjónustu kjósa frekar að fá greitt í peningum, til að mynda leigubílstjórar eða veitingastaðir. Margir kjósa einnig að gefa þjórfé með peningum.

Það er aldrei of seint að byrja að spara. Hins vegar getur verið svolítið erfitt að gera einmitt það: Að byrja. Því að stóra spurningin er …
… hvar byrjar maður eiginlega?

Sparnaður er mikilvægur til þess að öðlast fjárhagslegt öryggi og hafa svigrúm til þess að mæta óvæntum útgjöldum. Við höfum tekið saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga þegar kemur að sparnaði.