Okkar hæstu vextir greiddir í hverri viku
Spenntu beltið og fylgstu með sparnaðinum takast á flug!

Spenntu beltið og fylgstu með sparnaðinum takast á flug!

Um er að ræða sparnaðarreikning þar sem peningurinn er alltaf laus til notkunar. Vextir miðast við stigið í Arion fríðindum og hækka í þrepum eftir því sem innistæðan eykst.
Við greiðum þér síðan vexti af höfuðstól reikningsins í hverri einustu viku – ekki bara einu sinni á ári. Þetta þýðir að þú færð bæði vexti af upphaflegri fjárhæð og þeim vöxtum sem bætast við í hverri viku.
Sparnaðurinn vex því hraðar en nokkru sinni fyrr!

Til að virkja Fríðindareikninginn þarftu að hafa skráð þig í Arion fríðindi. Þá ættir þú að sjá borða efst í Arion appinu sem leiðir þig í gegnum örfá einföld skref.
Ef þú ert nýr viðskiptavinur byrjar þú á að skrá þig í Arion fríðindi. Því næst þarftu að ganga úr skugga um að þú uppfyllir ákveðin skilyrði svo þú getir virkjað reikninginn.


Vikulegir vextir bætast ofan á höfuðstólinn í hverri viku. Þetta þýðir að þú færð bæði vexti af upphaflegri fjárhæð og þeim vöxtum sem bætast við í hverri viku.
Sparnaðurinn vex því hraðast hér.
Mánaðarlegir vextir bætast ofan á höfuðstólinn einu sinni í mánuði sem þýðir að þú færð sjaldnar vexti af vöxtum, sem hægir á ávöxtuninni til lengri tíma.
Ársvextir bætast ofan á höfuðstólinn einu sinni á ári sem þýðir að sparnaðurinn þinn vex hægast.
kr.
kr.
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |
Heildarupphæð í lok tímabils:
Sparnaður | 0 kr. |
Ávöxtun | 0 kr. |
Fríðindareikningur er óbundinn, óverðtryggður sparnaðarreikningur í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum.
Reikningurinn er hluti af Arion fríðindum en þú þarft að uppfylla a.m.k. skilyrði fyrir stig 1 til að geta virkjað hann.
Þú byrjar á því að opna Fríðindareikninginn þinn í Arion appinu.
Því næst smellir þú á „Millifæra“ og ákveður upphæðina sem þú vilt leggja inn á ráðstöfunarreikninginn þinn.
Athugið að þú getur aðeins millifært inn á reikninginn sem skráður er ráðstöfunarreikningur Arion fríðinda.
Nei, þú getur aðeins millifært af Fríðindareikningnum inn á skráðan ráðstöfunarreikning fyrir innborganir í Arion appinu.
Til að skipta um ráðstöfunarreikning þarftu að:
Smella á hringinn efst í hægra horni appsins og svo á „Sjálfgefnir reikningar“
Því næst velurðu hvaða reikningur á að vera skráður sem ráðstöfunarreikningur, og þar með fyrir millifærslur af Fríðindareikningnum
Til að skipta um ráðstöfunarreikning þarftu að:
Smella á hringinn efst í hægra horni appsins og svo á „Sjálfgefnir reikningar“
Því næst velurðu hvaða reikningur á að vera skráður sem ráðstöfunarreikningur fyrir innborganir og þar með fyrir millifærslur af Fríðindareikningnum
Já, fjármagnstekjuskatturinn er dreginn af upphæðinni í hverri viku, þ.e. um leið og vaxtagreiðsla fer fram.
Nei, það er ekki hægt að skrá reikninginn sem skuldfærslureikning. Aðeins er hægt að millifæra af reikningnum inn á ráðstöfunarreikning Arion fríðinda.
Það er eingöngu hægt að veita skoðunaraðgang að reikningnum, ekki millifærsluaðgang.