Við viljum að þú njótir góðs af því að vera í viðskiptum við okkur. Markmiðið með Arion fríðindum er að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu samstæðunnar.
Fríðindakerfið skiptist í mismunandi stig þar sem viðskiptavinir færast ofar í kerfið eftir því sem fleiri þjónustuþættir eru nýttir og njóta þar með betri kjara og aukinna fríðinda.
Þú opnar Arion appið og fylgir örfáum einföldum skrefum. Í kjölfarið færðu góða yfirsýn yfir fríðindin þín og þær þjónustur sem þú ert með hjá okkur ásamt því að sjá hvaða auknu fríðindi standa þér til boða.

Hér getur þú skoðað fríðindi eftir stigum. Ávinningurinn er mikill svo við hvetjum þig til að skrá þig til leiks sem fyrst.

Fríðindareikningurinn er óbundinn og peningurinn því alltaf laus til notkunar. Vextir eru greiddir af höfuðstól vikulega, sem þýðir að sparnaðurinn þinn vex hraðar en nokkru sinni fyrr!
Ef þú ert í viðskiptum hjá Arion og með Heimilisvernd hjá Verði getur þú fengið allt að 7% endurgreiðslu af tryggingunum þínum.

Fríðindakerfið byggir á ákveðnum þjónustuþáttum. Því fleiri þætti sem þú ert með, því ofar kemstu í fríðindakerfið og nýtur þar með betri kjara.
Hér getur þú séð þjónustuþættina sem um ræðir:
Virk velta
Virkt kort
Íbúðalán eða bílalán hjá Arion
Viðbótarlífeyrissparnaður Arion eða Frjálsa
Heimilisvernd hjá Verði
Áskrift í sjóðum Stefnis
Ungt fólk
Ef þú ert 23 ára eða yngri tilheyrir þú þessu stigi – ef þú uppfyllir frekari skilyrði færist þú upp um stig. Miðað er við afmælisdag, svo daginn sem þú verður 24 ára falla umrædd fríðindi niður.
Stig 1
Þú þarft að vera með að minnsta kosti tvær þjónustur af þessum sex.
Stig 2
Þú þarft að vera með að minnsta kosti fjórar þjónustur af þessum sex.
Stig 3
Til að komast á stig 3 er skilyrðið að vera með yfir 10 milljónir í fjárhagsstöðu eða eiga fyrirtæki í viðskiptum, ásamt því að vera með þrjár virkar þjónustur.
Premía
Til að komast í Premíu-þjónustuna þarftu að vera með yfir 40 milljónir í fjárhagsstöðu, ásamt því að vera með þrjár virkar þjónustur.

Arion fríðindi er nýtt fríðindakerfi Arion og er markmiðið að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu Arion samstæðunnar. Fríðindakerfið skiptist í mismunandi stig þar sem viðskiptavinir færast ofar í kerfið eftir því sem fleiri þjónustuþættir eru nýttir og njóta þar með betri kjara og aukinna fríðinda. Hér getur þú skoðað þau fríðindi sem í boði eru ásamt þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla á ólíkum stigum kerfisins.

Árangur þinn skiptir okkur máli og viljum við að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þess vegna færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði.

Arion býður upp á víðtækustu fjármálaþjónustu á Íslandi. Fjölbreytt þjónusta veitir okkur sérstöðu – fjölbreyttur hópur viðskiptavina, með ólíkar þarfir og markmið, nýtir sér öfluga þjónustu á sviði lána, sparnaðar og fjárfestinga, eins og lífeyrismála, sjóða og verðbréfa, og trygginga.