Viðskipti með sjóði eru einföld og án hindrana
Hvort sem þú vilt fjárfesta fyrir 100 kr. eða milljón þá kostar ekkert að kaupa og selja í sjóðum í appinu og netbanka – og það er engin krafa um lágmarkskaup.

Hvort sem þú vilt fjárfesta fyrir 100 kr. eða milljón þá kostar ekkert að kaupa og selja í sjóðum í appinu og netbanka – og það er engin krafa um lágmarkskaup.

Markmið Stefnis – Lausafjársjóðs hs. er að fjárfesta í innlánum, víxlum, skuldabréfum og öðrum stuttum fjármálagerningum. Eignasafn sjóðsins mun ekki hafa meðallíftíma lengri en 180 daga.
Stefnir – Samval hs. er blandaður sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta og hefur því heimild til að fjárfesta í skuldabréfum og hlutabréfum, auk sérhæfðra fjárfestinga.
Sjóðurinn fjárfestir í traustum erlendum fyrirtækjum með sterka samkeppnisstöðu og góða arðsemi.
Til að geta átt viðskipti með sjóði þarftu að stofna til verðbréfaviðskipta. Þú svarar nokkrum spurningum um þekkingu og reynslu og í kjölfarið stofnum við verðbréfasafn sem er nauðsynlegt fyrir uppgjör viðskipta með verðbréf og sjóði.
Viltu leggja góðan grunn að framtíð barnsins þíns?
Ef þú ert forráðamaður ófjárráða einstaklings getur þú stofnað verðbréfasafn fyrir viðkomandi með einföldum hætti.
Mikilvægast er að byrja strax því að tíminn vinnur með þér. Þú velur upphæðina sem hentar þér, það er ekkert lágmark og þú greiðir engan viðskiptakostnað við kaup og sölu. Þú getur valið að vera með áskrift í fleiri en einum sjóði fyrir ólíkar upphæðir, t.d. fyrir ólík markmið.
Skattalegt hagræði felst í því að spara í sjóðum því þú greiðir ekki fjármagnstekjuskattinn fyrr en þú selur.
Við bjóðum upp á milligöngu með skráð og óskráð verðbréf, afleiður, vörslu eigna, útboð hluta- og skuldabréfa og sérsniðnar lausnir fyrir fagfjárfesta og fyrirtæki.

Ef þú vilt eiga viðskipti á erlendum mörkuðum, aðstoðum við með milligöngu. Þú sérð bréfin í appinu og getur fylgst með þróun þeirra.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts. Ávöxtunin sem hér er birt er í íslenskum krónum.
Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður teljist verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu bankans undir yfirliti sjóða þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Jafnframt er hægt að nálgast framangreind gögn í útibúum bankans. Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.
Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði og rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Stefnir er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.
Upplýsingar þær sem hér koma fram byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Áskilinn er réttur til leiðréttinga. Arion banki eða starfsmenn bankans bera enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.