Einkaklúbburinn er fyrir alla viðskiptavini


Allir viðskiptavinir Arion eru sjálfkrafa með Einkaklúbbinn og geta sótt appið í símann að kostnaðarlausu.
Í Einkaklúbbsappinu ertu með aðgang að fjölmörgum tilboðum hjá mjög fjölbreyttu úrvali fyrirtækja. Tilboðin eru alltaf aðgengileg í gegnum símann þinn og appið er mjög einfalt í notkun.
Tilboðin í appinu eru ýmist einnota eða fjölnota. Með því er átt við að ákveðin tilboð standa ávallt til boða meðan önnur eru annað hvort tímabundin eða tilboð sem einungis er hægt að virkja í eitt skipti.
Þú færð reglulega tilkynningar um ný tilboð send í appið og þannig er auðvelt að fygjast með nýjungum.

Á hverjum tíma eru tugir spennandi tilboða í gangi í Einkaklúbbs appinu. Hér eru dæmi um samstarfsaðila okkar.

Fjallkonan býður upp á fjölbreyttan matseðil þar sem íslenskar hefðir og alþjóðlegar straumar mætast. Frábært úrval smárétta til að deila, safaríkir aðalréttir, ógleymanlegir eftirréttir og kokteilar.
Skoðaðu hvað er í boði í Einkaklúbbsappinu.

Kol býður upp á einstaka matarupplifun með áherslu á íslensk hráefni og innblástur úr öllum heimshornum.
Skoðaðu hvað er í boði í Einkaklúbbsappinu.

Monkeys leikur sér með svokallaða Nikkei matreiðslu, þar sem japanskar matreiðsluhefðir blandast við perúískar og úr verður mikið úrval spennandi smárétta sem vekja forvitni og kitla bragðlaukana.
Skoðaðu hvað er í boði í Einkaklúbbsappinu.
Einkaklúbburinn er einn stærsti fríðindaklúbbur landsins. Í honum felast áhugaverð markaðssetningartækifæri fyrir fyrirtæki sem geta boðið upp á spennandi tilboð.
Sendu okkur endilega línu á netfangið arionbanki@arionbanki.is og við skoðum málið saman.
