Sérsniðin fjármálaþjónusta fyrir þig
Premía einkabankaþjónusta – við aðstoðum þig við að byggja upp eignasafnið þitt.
Premía einkabankaþjónusta – við aðstoðum þig við að byggja upp eignasafnið þitt.

Premía einkabankaþjónusta er fjármálaþjónusta fyrir umsvifamikla viðskiptavini bankans.
Þú færð eigin viðskiptastjóra sem sér um allt er snýr að þínum fjármálum og aðstoðar þig við að byggja upp traust eignasafn.
Starfsfólk okkar er með viðamikla reynslu á fjármálamarkaði, svo þú getur verið viss um að vera í góðum höndum. Premíu þjónustan skiptist í þrjár leiðir, Premíu, Premíu einkabankaþjónustu og Premíu fjárstýringu.
Þú færð ekki einungis betri kjör og þjónustu, því þú getur einnig nýtt þér vörur sem aðeins standa viðskiptavinum Premíu einkabankaþjónustu til boða.
Að auki sér viðskiptastjórinn þinn um að veita þér upplýsingar og regluleg yfirlit.
Þú átt einnig kost á að fara á efsta stig í Arion fríðindum þar sem þú færð m.a. 7% endurgreiðslu af tryggingum þínum hjá Verði, sem og hærri endurgreiðslu af árgjaldi kreditkorts. Þú skráir þig í Arion fríðindi í appinu.
✓ Persónulegur viðskiptastjóri
✓ Eignastýring og ráðgjöf
✓ Skatta-, erfða-, og lögfræðiþjónusta
✓ Betri tækifæri á mörkuðum
✓ Ráðgjöf um lífeyrismál
✓ Reglulegir fundir og mikil upplýsingagjöf
✓ Sparnaðarreikningar á betri kjörum
✓ Debetkortareikningar á betri kjörum
✓ Sérkjör á tryggingum Varðar ásamt sérstakri golftryggingu
✓ Afsláttur af viðskiptaþóknun í hlutabréfaviðskiptum*
✓ Aðgangur að fleiri sjóðum
✓ Okkar öflugasta kreditkort
✓ Aukið aðgengi að markaðstækifærum
✓ Forgangur að miðakaupum hjá Senu Live
✓ Boð á sérstaka viðburði
✓ Reglulegt fréttabréf og tilboð
*Í appi og netbanka
Hjá okkur hefur þú aðgang að sérfræðingum á sviði lífeyrismála, trygginga, auk skatta- og erfðamála.
Við fylgjumst náið með breytingum á mörkuðum og gerum nauðsynlegar ráðstafanir til að vernda og auka verðmæti eigna þinna.
Viðskiptastjóri þinn tryggir auk þess að eignasafnið þitt sé alltaf í takt við þínar þarfir – enda er þinn árangur okkar markmið.

Í eignastýringarþjónustu sjáum við um að stýra safninu þínu. Sérfræðingar taka ákvarðanir um kaup og sölu eigna í samræmi við fjárfestingarstefnu sem miðuð er að þínum þörfum.
Lágmarksupphæð er 40 milljónir króna.
Þú sérð um að taka ákvarðanir um fjárfestingar frá degi til dags. Viðskiptastjóri veitir þó upplýsingar um stöðu markaða, gefur ráðleggingar um fjárfestingartækifæri og framkvæmir viðskipti.
Lágmarksupphæð er 100 milljónir króna.
Sem viðskiptavinur Premíu hefur þú aðgang að sérhönnuðum greiðslukortum.
Kreditkortinu fylgja okkar bestu ferðatryggingar, golftrygging og fjöldi annarra fríðinda, eins og aðgangur að Saga Lounge og frí heimsókn í Betri stofu World Class mánaðarlega.
Auk þess safnar þú vildarpunktum Icelandair af allri verslun, innlendri sem erlendri.
Í ofanálag færð þú sérhannað Premíu debetkort.
Með nýstofnuðu korti fylgja 5.000 Vildarpunktar. Þú safnar síðan 12 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 kr. af allri verslun, bæði innanlands og utan.
Þú færð 50.000 Vildarpunkta í gjöf frá okkur ef ársvelta er yfir 2.500.000 kr. í erlendri mynt.
Kortinu fylgja okkar allra bestu ferðatryggingar og víðtækari bílaleigutryggingar. Frábær kjör fyrir fólk sem ferðast mikið.
Ef þú ferð holu í höggi áttu rétt á greiðslu sem hugsuð er til þess að mæta þeim kostnaði sem hlýst af því að bjóða meðspilurum upp á veitingar að hring loknum.
Ókeypis aðgangur að Saga Lounge á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair. Korthafar geta boðið einum gesti með sér, þó gegn gjaldi, alla daga vikunnar nema á fimmtudögum.
Þú getur nýtt þér flýtiinnritun (Priority check-in) á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair.
Með því að framvísa kortinu býðst þér að heimsækja Betri stofu World Class 1x í mánuði ásamt einum gesti.
Þú færð 10% afslátt af veitingum hjá Reykjavík Edition. Afslátturinn gildir á The ROOF, Lobby Bar, Tides og Tides Cafe. Aðgangur að Tölt bar sem eingöngu er opinn þeim sem eru með meðlimakort.
Bagbee sækir farangurinn heim til þín, flytur til Keflavíkurflugvallar og innritar. Sýna þarf Premíu kreditkortið við afhendingu og nafn handhafa kortsins þarf að vera á pöntuninni. Kóðinn ArionPremia virkjar afsláttinn. Virkar þegar flogið er með Icelandair eða Neos.
Þú færð 15% afslátt af bæði pakka- og dagsferðum á þyrluskíðaferðum. Að auki sér Viking Heliskiing um að sækja þig og skila á Akureyrarflugvöll, án endurgjalds.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að senda okkur póst á premia@arionbanki.is.

















