Fjárhagslegt frelsi á eigin forsendum
Þú getur látið draumana rætast án þess að skipta um húsnæði.
Þú getur látið draumana rætast án þess að skipta um húsnæði.
Fasteignalífeyrir er hentugur fyrir fólk sem skuldar lítið í húsnæðinu sínu, vill njóta lífsins og gera það sem hugurinn girnist.
Lánið er veitt gegn veði í húsnæðinu, en meðan á lánstíma stendur þarf ekki að greiða af láninu en höfuðstóll lánsins hækkar
Við lok lánstímans er lánið greitt upp, en einnig kemur til greina að endurfjármagna.
Þú getur sótt um með því að senda póst á ibudalan@arionbanki.is eða bókað tíma í íbúðalánaráðgjöf.
Með fasteignalífeyrisláni getur þú fjármagnað ferðalög til þeirra landa sem þig hefur dreymt um að heimsækja – án þess að selja húsið þitt.
Þú getur einnig nýtt lánsféð til að gera heimilið aðgengilegra með nýjum gólfefnum, endurnýjuðu baðherbergi og uppfærðri lýsingu – án þess að taka hefðbundið lán með mánaðarlegum afborgunum.


Stuðningur við fjölskyldu skiptir mörg okkar máli. Fasteignalífeyrir veitir möguleika á að aðstoða komandi kynslóðir við að koma sér upp heimili eða styðja í daglegu lífi.
Það getur líka verið góður kostur að greiða upp yfirdrátt og kreditkortaskuldir og auka þannig mánaðarlegt ráðstöfunarfé án þess að þyngja greiðslubyrði.

Íslenska lífeyriskerfið getur verið svolítill frumskógur. Við hvetjum þó fólk til að bíta á jaxlinn og setja sig vel inn í lífeyrismálin, enda skiptir slík fyrirhyggja miklu varðandi þá möguleika sem okkur bjóðast við starfslok.

Það er mikilvægt að staldra reglulega við og kanna stöðu og kjör þeirra lána og fjárhagslegu skuldbindinga sem þú ert með. Það getur munað miklu að endurfjármagna lán sem bera háa vexti eða eru óhagstæð á einhvern hátt.

Ójöfn staða sambúðaraðila hvað varðar lífeyrisréttindi hefur verið nokkuð í umræðunni. Í lögum um lífeyrissjóði er til staðar jöfnunarúrræði sem heimilar skiptingu eftirlaunaréttinda eða lífeyrisgreiðslna milli hjóna eða sambúðaraðila með frjálsum samningum. Margt þarf þó að hafa í huga þegar skoðað er hvort skipting eftirlaunaréttinda henti og ekki hægt að fullyrða að sú leið sé alltaf hin rétta í stöðunni.Ef ákveðið er að skipta lífeyrisréttindum nær skiptingin eingöngu til eftirlaunaréttinda þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap eða óvígðri sambúð og til réttinda sem orðið hafa til á þeim tíma. Skiptingin þarf að vera gagnkvæm, jöfn og ná til allra lífeyrissjóða sem sjóðfélagi og maki eiga réttindi í. Lagaskilyrði um heilsufar og aldur eiga við um skiptingu áunninna réttinda svo skoða þarf þann valmöguleika tímanlega.

Greiðslukort eru þægileg og handhæg leið til að greiða fyrir vörur og þjónustu og fá góða yfirsýn yfir eyðslu hvers mánaðar. Einnig fylgir þeim ákveðið öryggi eins og endurkröfuréttur.