Greiðslumat á nokkrum mínútum


Greiðslumat er fyrsta skrefið þegar kemur að lántöku, enda er mikilvægt að þekkja eigin greiðslugetu til að geta valið eign.
Þú notar rafrænu skilríkin þín til að samþykkja að við sækjum upplýsingar um þig – s.s. tekjur, eignir og skuldir. Við reiknum svo út greiðslugetu þína á örfáum mínútum.
Kostnaður við greiðslumat er 7.000 kr. fyrir einstakling og 12.500 kr. fyrir hjón. Athugaðu að þú þarft að greiða gjaldið þó að ekki verði af lánveitingu.
Hægt er að gera sameiginlegt greiðslumat fyrir hjón og einstaklinga sem ætla að kaupa fasteign saman. Fyrst þarf að staðfesta að þau deili heimili og framfærslukostnaði.
Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrði ekki vera hærri en 35% af tekjum – eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti.
Greiðslumatið gildir í sex mánuði og á því tímabili getur þú opnað það hvenær sem er. Greiðslumatið lokast um leið og lánveiting er annaðhvort samþykkt eða hafnað.
Ef greiðslumat er gert fyrir lánveitingu hjá öðrum en Arion banka, Frjálsa lífeyrissjóðnum eða EFÍA þarf að undirrita og greiða fyrir það samkvæmt verðskrá bankans.
Þegar niðurstöður greiðslumats liggja fyrir ættir þú að vera með skýra mynd af því hversu hátt lán þú getur tekið. Við bendum þó á að greiðslumatið tekur ekki tillit til rekstrarkostnaðar fasteignar né reglna Seðlabankans um greiðslubyrði.
Því getur verið gott að miða lántöku ekki við hámark matsins, heldur hafa smá svigrúm fyrir annan kostnað.
