Greiðslumat á nokkrum mínútum


Greiðslumat er fyrsta skrefið þegar kemur að lántöku, enda er mikilvægt að þekkja eigin greiðslugetu til að geta valið eign.
Með rafrænum skilríkjum samþykkir þú að við sækjum upplýsingar um launatekjur, eignir og skuldir og á örfáum mínútum reiknum við út greiðslugetu þína.
Kostnaður við greiðslumat er kr. 7.000 fyrir einstakling og kr. 12.500 fyrir hjón. Gjaldið þarf að greiða þó að verði ekki af lánveitingu.
Greiðslumeta má saman hjón og einstaklinga sem staðfesta að þeir deili heimili, framfærslukostnaði og hyggjast kaupa fasteign í sameiningu.
Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrði, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35% eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti.
Greiðslumatið gildir í 6 mánuði. Þú getur opnað það hvenær sem er á meðan það er í gildi.
Greiðslumatið lokast um leið og lánveiting er samþykkt eða hafnað.
Ef greiðslumat er framkvæmt vegna lánveitinga hjá öðrum en Arion banka, Frjálsa lífeyrissjóðnum eða EFÍA þá þarf að fá greiðslumatið undirritað og greiða fyrir það samkvæmt verðskrá bankans.
Þegar niðurstöður greiðslumats liggja fyrir ættir þú að vera með skýra mynd af því hversu hátt lán þú getur tekið. Við bendum þó á að greiðslumatið tekur ekki tillit til rekstrarkostnaðs fasteignar né reglna Seðlabankans um greiðslubyrði.
Því getur verið gott að miða lántöku ekki við hámark matsins, heldur hafa smá svigrúm fyrir annan kostnað.
