Forsendur fyrir láni

Það er skylda að hafa lánið í skuldfærslu af innlánsreikningi hjá Arion banka í íslenskum krónum. Það má ekki greiða þau í erlendri mynt. Viðskiptavinur verður að hafa frumkvæði af því að millifæra á reikning í íslenskum krónum til að greiða af láninu.

Í boði eru óverðtryggð lán með föstum vöxtum í 3 ár eða óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum.

Hvernig sæki ég um?

Áður en farið er af stað er gott að meta stöðuna með því að fara í gegnum greiðslumat. Ef þú hefur áhuga að kynna þér málið betur getur þú sent okkur línu á netfangið ibudalan@arionbanki.is eða bókað tíma hjá ráðgjafa.

  • Veðhlutfall má aldrei fara yfir 70% af markaðsvirði við kaup og fasteignamati við endurfjármögnun

  • Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrðarhlutfall, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35% eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti

  • Lánið er alltaf á fyrsta veðrétti

  • Lánstími: 5-40 ár

  • Lágmarkslán er kr. 1.000.000 við hverja lántöku

  • Fasteignaveð er alltaf á Íslandi

  • Ætli lántaki sér ekki að búa í fasteigninni hefur það áhrif á vaxtaálag lánsins

  • Leyfilegt er að lána til aðila sem eru með erlent lögheimili en ákveðin lönd þarf að skoða nánar

Greiðslumat

Lántaki þarf að geta staðist greiðslumat að teknu tilliti að greiðslubyrði (regluleg endurgreiðsla lánsins) íbúðaláns geti hækkað um 40%.

Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrðarhlutfall, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35% eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti.

Krafa um aukinn afgang í greiðslumati:
Ef heildarumsókn íbúðalánsins er hærri en 70.000.000 kr. þarf afgangur í greiðslumati að vera 10.000 kr. fyrir hverja milljón umfram 70.000.000 kr.

Dæmi: Fyrir 80.000.000 kr. íbúðalán þarf að vera með 100.000 kr. afgang í greiðslumati.

Hús
Íbúðalán fyrir þá sem eru með tekjur í erlendum gjaldmiðli - Arion banki