Þú getur sett íbúðalánið í leyfi
Það getur komið sér vel við ákveðnar aðstæður að geta sótt um leyfi frá greiðslu á íbúðaláni.

Það getur komið sér vel við ákveðnar aðstæður að geta sótt um leyfi frá greiðslu á íbúðaláni.

Þú getur sótt um leyfi frá greiðslu lánsins einu sinni á almanaksári, en þó þurfa að líða a.m.k. 9 mánuðir á milli umsókna.
Athugaðu að vextir og verðbætur reiknast þó áfram og leggjast við höfuðstólinn í stað þess að greiðast. Það mun leiða til hærri afborgunar þegar greiðslur hefjast að nýju þar sem lánstími lengist ekki.
Innheimt er afgreiðslugjald kr. 9.995 fyrir hvert lán sem leggst ofan á næstu afborgun lánsins. Við vinnslu skilmálabreytinga þarf að taka út veðbókarvottorð eignarinnar.
Veðbókarvottorð er sótt með rafrænum hætti til sýslumannsembættis og er kostnaður við það innifalinn í afgreiðslugjaldinu.
Sækja þarf um í síðasta lagi tveimur dögum fyrir mánaðamótin sem þú vilt taka leyfi frá greiðslu lánsins. Skjöl verða send á umsækjanda til rafrænnar undirritunar. Umsækjandi þarf að undirrita skjölin rafrænt fyrir 1. dag næsta mánaðar.
Umsóknin tekur til allra íbúðalána sem umsækjandi er með og staðfestir umsækjandi með undirritun sinni hvaða lán eiga að falla undir greiðsluleyfið.
Við hvetjum þig til þess að hafa samband á arionbanki@arionbanki.is eða í gegnum netspjall ef spurningar vakna.