Ráðstöfun séreignarsparnaðar


Það eru tvö úrræði í boði sem gera þér kleift að fjármagna íbúðakaup að hluta til skattfrjálst. Í báðum úrræðunum er boðið upp á reglulegar greiðslur framtíðariðgjalda inn á lán en í úrræði fyrstu íbúðar er auk þess hægt að fá uppsafnaða eingreiðslu iðgjalda greidda sem húsnæðissparnað við fyrstu íbúðakaup.
Úrræðin eru nú bæði varanleg og gilda í 10 ár samanlagt fyrir hvern einstakling þ.e. 120 mánuði. Eingöngu er heimilt að nýta iðgjöld, ekki ávöxtun.
Þú getur fundið allar frekari upplýsingar um skattfrjálsu úrræðin tvö á vefsíðu Skattsins.
Sótt er um bæði úrræðin á skattur.is.
Það getur tekið Skattinn einhverjar vikur að afgreiða hverja umsókn. Staðfesting eða höfnun berst með tölvupósti.
Ef umsókn er hafnað hjá Skattinum má skrá sig inn á skattur.is og uppfæra þar umsókn til að bregðast við athugasemdum.
Eftir að Skatturinn samþykkir umsókn er hún afgreidd hjá Arion banka eins fljótt og mögulegt er.
Eingreiðslur húsnæðissparnaðar fara fram tvisvar í mánuði, annars vegar 15. hvers mánaðar og hins vegar síðasta virka dag hvers mánaðar.
Greiðslur inn á lán eru almennt afgreiddar mánaðarlega en þó aldrei sjaldnar en á þriggja mánaða fresti.
Í Arion appinu er einfalt að fylgjast með stöðunni á sparnaðinum þínum og hvort greiðslur inn á lán séu virkar.

Helstu breytingar á almenna úrræðinu:
Varanleg heimild, samanlagt tíu ára ráðstöfunartímabil þ.e. 120 mánuðir
Hámarksfjárhæð breytist í takt við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs
- Fyrst í janúar 2027
- Fjárhæðir hafa verið óbreyttar frá upphafi
Hámarksfjárhæð verður eingöngu bundin við einstaklinga, engin tenging verður milli hjóna/samskattaðra lengur
Ekki hægt að sækja um húsnæðissparnað til íbúðakaupa í almenna úrræðinu lengur
Gert að skilyrði að íbúðarhúsnæðið sem lánið er með veð í:
- Sé lögheimili umsækjanda
- Að umsækjandi eigi a.m.k. 30% eignarhlut í því
Búseturétthafar geta ekki lengur nýtt almenna úrræðið
Umsóknarform á skatturinn.is
Umsókn gildir um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst
- Undantekning: umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda þó frá janúar 2026 (það er ekki val)
Helstu breytingar á úrræði fyrstu íbúðar:
Samanlagt tíu ára ráðstöfunartímabil þ.e. 120 mánuðir, í stað samfellds tímabils áður
Hámarksfjárhæð breytist í takt við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs
- Fyrst í janúar 2027
- Fjárhæðir hafa verið óbreyttar frá upphafi
Úrræði fyrstu íbúðar | Almenna úrræðið | |
|---|---|---|
Hvaða lög og reglur gilda um úrræðin? | Lög nr. 111/2016 um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð frá 01.07.2017. Giltu afturvirkt til 01.07.2014. | Lög nr. 71/2026 um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána, gilda frá 1. október 2026. |
Hvaða lífeyrissparnað má nota skattfrjálst? | Viðbótarlífeyrissparnað og tilgreinda séreign. | Viðbótarlífeyrissparnað eingöngu. |
Hvort úrræðið á við? | Þú sækir um úrræði fyrstu íbúðar ef minna en 12 mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar EÐA ef þú hefur ekki átt íbúð sl. 5 ár. | Þú sækir um almenna úrræðið ef meira en 12 mánuðir eru frá kaupsamningi fyrstu íbúðar eða ef ekki er um þín fyrstu íbúðakaup að ræða. |
Með hvaða hætti er hægt að nýta skattfrjálsu ráðstöfun? | Þú getur sótt um húsnæðissparnað vegna fyrstu kaupa þ.e. uppsafnaða eingreiðslu iðgjalda frá 01.07.2014 eða síðar og til kaupdags íbúðar. | Þú getur sótt um reglulegar greiðslur framtíðariðgjalda inn á höfuðstól láns eftir íbúðakaup. Gildir frá umsókn og þar til tímabili lýkur. Iðgjöld tímabila sem líða frá íbúðakaupum og þar til sótt er um nýtast ekki sem greiðslur inn á lán. |
Er skilyrði að íbúðin sé til eigin nota? | Nei, það er ekki skilyrði í úrræði fyrstu íbúðar að eignin sé til eigin nota. Þú mátt því leigja íbúðina út. | Já, það er skilyrði í almenna úrræðinu að eignin sé til eigin nota. Þú mátt því ekki leigja íbúðina út. |
Gildir bæði um úrræði fyrstu íbúðar og almenna úrræðið. | Þú sækir um á www.skattur.is. | |
Sérreglur um úrræði fyrstu íbúðar. | Ef tveir eða fleiri kaupa íbúð saman gætu sumir átt rétt á úrræðinu, aðrir ekki. | Á ekki við. |
Sérreglur um úrræði fyrstu íbúðar. Nýtt! frá 1. janúar 2023. | Þú getur nýtt úrræði fyrstu íbúðar ef fimm ára reglan á við um þig: Nýta má tilgreinda séreign: | Á ekki við. |
Þú getur eingöngu ráðstafað iðgjöldum, ekki ávöxtun, það er því ekki heildareign þín í sjóðnum sem um ræðir. Dæmi um það sem gæti orsakað lægri ráðstöfun en innborguð iðgjöld tímabilsins:
Launagreiðandi hefur ekki staðið skil á öllum iðgjöldum.
Þú hefur nýtt hluta viðbótariðgjalda til að greiða fyrir tryggingar.
Þú nýttir fyrirframgreiðslu viðbótarsparnaðar 2014 eða 2021-2022.
Þú fluttir hluta inneignar úr öðrum sjóði sem safnaðist f. 01.07.2014.
Ávöxtun hefur verið neikvæð á tímabilinu.
Framlag launþega skal að lágmarki vera 2%, framlag launagreiðanda er ekki nóg.
Hámark einstaklings er 500.000 kr. á ári og skiptist í 333.000 kr. (4% framlag launþega) og 167.000 kr. (2% framlag launagreiðanda.
Til að ná hámarksfjárhæð þurfa laun að vera 695.000 kr. fyrir skatt, 4% framlag launþega og 2% framlag launagreiðanda.
Ef umsókn berst Skattinum t.d. í október er skattfrjáls ráðstöfun þess árs aðeins 500.000 kr. /12mán*3mán).
Skatturinn staðfestir endanlega fjárhæð að teknu tilliti til gildistíma umsóknar og inneigna í öðrum sjóðum, ef við á. Sumir fá minna en þeir bjuggust við vegna ofangreindra takmarkana. Húsnæðissparnaður er oft raunhæfari sem afsalsgreiðsla en fyrsta útborgun.
Takmarkanir viðbótarsparnaðar:
Framlag launþega er skilyrði, framlag launagreiðanda er ekki nóg.
Lágmarksiðgjald launþega 2% eða minnst jafnhátt og viðbótariðgjald launagreiðanda.
Hámarksiðgjald launþega 4% og hámarksiðgjald launagreiðanda 2%.
Takmarkanir viðbótarsparnaðar OG tilgreindrar séreignar:
Eingöngu iðgjöld, ekki ávöxtun.
Val um takmarkaða nýtingu; þá má sjóðurinn aðeins ráðstafa skráðri fjárhæð eða fulla nýtingu; þá má sjóðurinn ráðstafa öllu framlagi þínu og launagreiðanda sem greitt er í viðbótarsparnað á tímabilinu a.t.t.t. takmarkana laganna.
Launagreiðandi þarf að standa skil á iðgjöldum svo að greiðsla sé möguleg.
Hafir þú flutt viðbótarsparnað milli sjóða, sem safnaðist fyrir 01.07.2014 er ekki hægt að nýta hann sem
húsnæðissparnað.
Fleira getur haft áhrif, sjá svar við: Gæti ég þurft að gera einhverjar breytingar á umsókn?
Ástæða höfnunar sést í tölvupósti Skattsins og undir samskiptaflipa á skattur.is eða á leidretting.is.
Gerum raunhæfar væntingar um fjárhæð og útgreiðslutíma. Sumir fá minna v. takmarkana og húsnæðissparnaður er raunhæfari sem afsalsgreiðsla en fyrsta útborgun.
Já, þú getur nýtt úrræði fyrstu íbúðar ef þú uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
Ef þú/maki áttuð ekki íbúð síðastliðin 5 ár fyrir umsókn.
Ef tekjuskattstofn + heildarfjármagnstekjur 15.901.523 kr. eða lægri (2025).
Ef við á, dregst þegar nýtt fjárhæð/tímabil almenna úrræðisins frá.
Nýta má tilgreinda séreign í úrræði fyrstu íbúðar:
Tilgreind séreign greiðist skattfrjálst í eingreiðslu inn á lán í apríl ár hvert, þegar búið er að ráðstafa viðbótarsparnaði, ef við á. Var fyrst gert 2024 vegna iðgjalda 2023.
Það er orðið of seint að nýta úrræði fyrstu íbúðar ef liðnir eru meira en 12 mánuðir frá því að kaupsamningur var gerður. En þú gætir mögulega nýtt almenna úrræðið hvort sem þú ert eigandi þinnar fyrstu íbúðar eða annarra íbúða.
Þú getur ekki sótt um húsnæðissparnað í almenna úrræðinu, eingöngu í úrræði fyrstu íbúðar.
Skattfrelsið gildir um uppsöfnuð viðbótariðgjöld (hámark 4%+2% en ekki ávöxtun) þeirra launatímabila sem þú varst ekki íbúðaeigandi, frá 01.07.2014 eða síðar og til kaupdags íbúðar.
Þú getur sótt um reglulegar greiðslur inn á lán. Umsóknin gildir ekki aftur í tímann heldur gildir skattfrelsið eingöngu um framtíðariðgjöld (hámark 4%+2%, ekki ávöxtun) launatímabila frá því að þú sækir um á skattur.is.
Nei, það er ekki orðið of seint. Í almenna úrræðinu er hægt að sækja um reglulegar greiðslur inn á lán eftir íbúðakaup: framtíðariðgjöld vegna launatímabila sem þú ert íbúðaeigandi eru greidd reglulega inn á lán frá umsókn þar til tímabili lýkur. Iðgjöld tímabila sem líða frá íbúðakaupum og þar til sótt er um nýtast ekki.
Umsókn gildir um alla jafna um þau iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst. Frá þeirri reglu er ein undantekning þ.e. umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 gilda afturvirkt um uppsöfnuð iðgjöld frá janúar 2026.
Krónutölulega séð nýtist skattfrelsið best ef umsækjandi nær að fullnýta hámarksheimild hvers árs fyrir sig. Sumir ná betri heildarnýtingu krónutölulega séð ef „húsnæðissparnaður" væri ekki nýttur eða nýttur í styttri tíma en „reglulegar greiðslur inn á lán" nýttar til lengri tíma. Því fyrr sem byrjað er að leggja fyrir í viðbótarsparnað því meiri húsnæðissparnað hefur umsækjandi möguleika á að nýta þegar þar að kemur og því fyrr sem sótt er um ráðstöfun inn á lán, því fleiri launatímabil nýtast.
Einstaklingur með 695.000 kr. í mánaðarlaun nær að fullnýta skattfrelsið ár hvert með 4%+2% iðgjaldi en heimild til ráðstöfunar inn á lán færist ekki á milli ára.
Raunin er hins vegar sú þar sem útborgun/afsalsgreiðsla er oft flöskuháls við íbúðakaup þá sækja margir um „húsnæðissparnað" jafnvel þó hámarksheimild hvers árs nýtist þeim ekki að fullu ( t.d. vegna lágra launa, lágs starfshlutfalls eða af því að framlag launþega er 2% en ekki 4%).
Allt er þetta hins vegar háð aðstæðum og val hvers umsækjanda fyrir sig og hvaða leið sem farin er, þá er ágætt að átta sig á kostunum í stöðunni og taka meðvitaða ákvörðun, svo að ekkert komi á óvart síðar.
Heildarferlið krefst samvinnu umsækjanda, Skattsins, vörsluaðila og launagreiðenda. Einnig lánveitanda vegna reglulegra greiðslna inn á lán.
Fyrir útgreiðslu húsnæðissparnaðar/greiðslu inn á lán þarf þetta að eiga sér stað:
Staðfesting frá Skattinum þarf að hafa borist í kerfi vörsluaðila/lánveitanda en staðfesting berst umsækjendum oft allt að viku fyrr.
Launagreiðandi þarf að vera búinn að greiða iðgjöld.
Greiðslugluggi lána þarf að vera opinn - ef greiða á inn á lán.
Frá móttöku á umsókn þar til Skatturinn staðfestir/hafnar umsókn geta liðið allt að 2-5 vikur. Húsnæðissparnaður er því yfirleitt raunhæfari sem afsalsgreiðsla en fyrsta útborgun.
Undir samskiptaflipa á umsóknarformi má fylgjast með stöðu umsóknar og nýtingu. Þar má einnig finna kvittun/staðfestingu á að umsókn hafi verið send, ásamt skilaboðum/athugasemdum.
Í netbanka sést greiðslusaga lána.
Í Arion appi sést hvort greiðslur eru virkar og hve mikið hefur verið greitt.
Á lífeyrisyfirlitum á arionbanki.is/minarsidur sjást allar útgreiðslur og hreyfingar.
Á vefsíðu skattsins er að finna hinar ýmsu upplýsingar um úrræðin s.s. Séreignarsparnaður - ráðstöfun inn á húsnæðislán | Ísland.is.
Já, það er á þína ábyrgð að tryggja Skattinum réttar upplýsingar á hverjum tíma og bregðast við athugasemdum Skattsins, ef við á. Ef þú ert í vafa, skaltu yfirfara upplýsingar þínar á skattur.is v. úrræðis fyrstu íbúðar/á leidretting.is v. almenna úrræðisins - áður en upplýsinga er leitað hjá Skattinum.
Ný umsókn. Það er á þína ábyrgð að sækja um nýja úrræðið á skattur.is. Það fer ekki sjálfkrafa í gang aftur, þó þú hafir nýtt þér skattfrjálsu úrræðin áður. Skatturinn mun auglýsa sérstaklega þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir nýja úrræðisins á skattur.is.
Nýr launagreiðandi. Ef þú skiptir um vinnu, þarftu að tilkynna vörsluaðila/sjóði um nýjan launagreiðanda. Gert í Arion appinu. Þá mun sjóðurinn senda lífeyrissamning þinn á nýja launagreiðandann svo hann geti hafið greiðslur. Ekki þarf að uppfæra umsókn á skattur.is eða á leidretting.is.
Nafn sjóðs/vörsluaðila. Skrá nafn nýja sjóðsins ef þú greiðir nú viðbótarsparnað í annan sjóð en áður. Nafnið ætti að sjást á launaseðli/samningi/lífeyrisyfirliti/Arion appi.
Nafn sjóðs/vörsluaðila. Sjóðurinn sem þú sóttir um í er ekki með viðbótarsparnað eða tilgreinda séreign heldur bundna eða frjálsa séreign skyldusparnaðar. Skrá þarf nafn rétta sjóðsins í umsóknina, eigir þú í öðrum sjóði.
Lánanúmer/lánasamningur. Við kaup og endurfjármögnun. Bæta nr. við lánalista, ef við á. Senda afrit af lánasamningi með umsókn. Sést í netbanka, Arion appi og á lánaskjölum. Umsækjandi bætir lánanúmeri við lánalista umsóknar hafi lán ekki þegar verið skráð á skattframtali.
Heimild ársins fullnýtt. Algeng skýring, einkum ef greiðslur falla niður að hausti eða í upphafi árs, er sú að heimild ársins hafi verið fullnýtt. Hægt er að ganga úr skugga um það á yfirlitssíðu umsóknar á skatturinn.is eða leidretting.is. Að öðru óbreyttu hefjast reglulegar greiðslur aftur á nýju almanaksári, oftast í mars, þegar iðgjöldum janúar - sem eru á eindaga í febrúarlok - verður ráðstafað inn á lán. Einstaklingar með 695.000 kr. í mánaðarlaun (m.v. 500.000 kr. hámarksnýtingu) ná að fullnýta skattfrelsið ár hvert með 4%+2% iðgjaldi alla 12 mánuði ársins.
Reikningsnúmer þitt. Vegna húsnæðissparnaðar.
Skráningarnúmer íbúðar/fastanúmer nýbyggingar. Sést í íbúðaskrá þjóðskrár á skra.is og á kaupsamningi.
Því fyrr sem þú byrjar að greiða í viðbótarsparnað (frá 01.07.2014) því meiri húsnæðissparnað áttu kost á til að kaupa fyrstu íbúð. Vegna skattfrelsis og mótframlags launagreiðanda er þetta ein hagkvæmasta leiðin til íbúðakaupa og/eða til að greiða lán hraðar niður.
Í Arion appinu getur þú gert samning og tilkynnt um nýjan launagreiðanda ef þú skiptir um vinnu. Þá mun sjóðurinn senda lífeyrissamning þinn á nýja launagreiðandann svo hann geti hafið greiðslur. Annars hættir sparnaður að safnast upp.
Frá janúar 2023 er heimilt að nýta tilgreinda séreign skattfrjálst í úrræði fyrstu íbúðar, sjá nánar hér: NÝTT 2023! Ég hef ekki átt íbúð í 5 ár, get ég nýtt mér úrræði fyrstu íbúðar?
Séreignarsparnaður er samheiti yfir viðbótar(lífeyris)sparnað, tilgreinda séreign, bundna séreign og frjálsa séreign vegna skyldusparnaðar. Einnig erfðaséreign.
Almenna úrræðið: Viðbótarsparnaður.
Úrræði fyrstu íbúðar: Viðbótarsparnaður og/eða tilgreind séreign.
Nei, ef þú ert með virka umsókn vegna Frjálsa um úrræði fyrstu íbúðar á skattur.is, þá kannar Frjálsi sjálfkrafa hvort rými sé til staðar fyrir greiðslu tilgreindrar séreignar inn á lán.