Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð.
Uppruni gagna: Stefnir hf.
Þú getur með einföldum hætti:
Fjárfest í stórum og meðalstórum fyrirtækjum á 24 nýmörkuðum
Dreift áhættunni á fjölda fyrirtækja og atvinnugreina um heim allan
Fjárfest í ábyrgum fyrirtækjum sem fylgja UFS-stöðlum
Sjóðurinn fylgir nýmarkaðsvísitölunni MSCI EM Screened Choice Index.
Vísitalan fylgir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja á 24 nýmörkuðum um allan heim.
Þegar þú kaupir í sjóðnum fjárfestir þú því óbeint í öllum fyrirtækjunum sem mynda vísitöluna.
Nýmarkaðir eru lönd með hagkerfi í vexti sem eru að verða stærri hluti af heimshagkerfinu.
Fjárfestingar á nýmörkuðum geta boðið upp á meiri vaxtarmöguleika en á þróuðum mörkuðum, en geta jafnframt sveiflast meira í verði.
Dæmi um nýmarkaði eru lönd í Asíu, Rómönsku Ameríku, Austur-Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku.
UFS stendur fyrir umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Viðmiðin hjálpa til við að bera kennsl á fyrirtæki sem starfa eftir þessum stöðlum og sýna þannig samfélagslega ábyrgð í verki.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í fyrirtækjum sem uppfylla þessi viðmið.
Fjárfestingarstefna sjóðsins er að fylgja afkomu vísitölunnar MSCI Emerging Markets Screened Choice Index eins nákvæmlega og unnt er, jafnframt því sem leitast er við að lágmarka eftir fremsta megni frávik milli árangurs sjóðsins og árangurs vísitölunnar. Sjóðurinn mun leitast við að endurspegla vísitöluna með því að eiga öll verðbréf sem í henni eru í svipuðu hlutfalli og vægi þeirra í vísitölunni.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun.
Fjárfesting í erlendum sjóðum getur jafnframt falið í sér gjaldeyrisáhættu. Verðmæti fjárfestingar og ávöxtun hennar geta því bæði aukist og minnkað vegna breytinga á gengi þeirra gjaldmiðla sem viðkomandi sjóður er skráður eða gerður upp í gagnvart íslenskri krónu. Við kaup í erlendum sjóðum kann fjárfestir jafnframt að eiga í gjaldeyrisviðskiptum sem sæta kostnaði og gengissveiflum.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu, lykilupplýsingum og öðrum viðeigandi gögnum má finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, þar á meðal upplýsingar um áhættu og hvort umræddur sjóður teljist verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Slík skjöl eru almennt aðgengileg hjá rekstraraðila, útgefanda eða dreifingaraðila viðkomandi sjóðs.
Skattaleg meðferð fjárfestinga ræðst af aðstæðum hvers fjárfestis fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Fjárfestar eru því hvattir til að kynna sér skattaleg áhrif fjárfestinga og leita eftir atvikum ráðgjafar sérfræðinga.
Upplýsingar sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og ber hvorki að líta á þær sem tilboð né sem persónulega fjárfestingarráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en engin ábyrgð er tekin á því að þær séu réttar. Engin ábyrgð er tekin á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.
Sjóðurinn fylgir þróun vísitölu sem mælir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja á 24 nýmörkuðum um allan heim. Eingöngu er fjárfest í félögum sem standast kröfur um ábyrgan rekstur.
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta í ábyrgum fyrirtækjum og þola þó nokkrar sveiflur í ávöxtun. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er fimm ár.