Fjármögnunarstefna Arion banka styður við stefnu og ímynd bankans og felur í sér að bankinn ætlar að vera leiðandi útgefandi á Íslandi, þökk sé góðum samskiptum við fjárfesta, öflugri upplýsingagjöf og góðu lánshæfismati óháðra aðila. Markmiðið er að draga úr misræmi milli tiltekinna eigna og skulda, hafa ákjósanlegt hlutfall innstæðna og heildsölufjármögnunar og jafnvægi í endurgreiðsluferli bankans.