Fjárfestingarkeppni Arion 2026
Nú getur þú lært að fjárfesta – og það án nokkurrar áhættu!

Nú getur þú lært að fjárfesta – og það án nokkurrar áhættu!

Þú skráðir þig til leiks í gegnum Dyngjuappið .
Velur annaðhvort framhaldsskóla- eða háskóladeildina.
Í kjölfarið færðu 10 milljónir sýndarveruleikakróna til að fjárfesta með.
Byrjaðu að fjárfesta! Þú getur fjárfest í hlutabréfum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og í sjóðum Stefnis.
Ávaxtaðu peninginn þinn! Keppandinn sem nær hæstu ávöxtuninni á tímabilinu 12. október – 9. nóvember sigrar!
1. sæti fær 100.000 kr.
2. sæti fær 75.000 kr.
3. sæti fær 50.000 kr.


Þetta er frábært tækifæri til að kynnast fjárfestingum í raunverulegu markaðsumhverfi – án þess að leggja eigið fé undir.
Í keppninni færðu að prófa þig áfram, læra helstu hugtök og sjá hvernig fjárfestingar þróast í rauntíma.
Aðeins nemendur háskólanna geta unnið verðlaun. Keppendurnir í þremur efstu sætunum þurfa að staðfesta skólavist.
Þú þarft að skrá þig fyrir 26. október til að eiga möguleika á verðlaunum (þér er velkomið að taka þátt eftir það, en getur þá ekki unnið til verðlauna).
Þú getur ekki keypt og selt eignir innan sama dags. Þú verður að eiga eign í félagi í a.m.k. einn dag og það er 0,75% þóknun á sölufærslum.
Þú þarft að dreifa fjármunum, þ.e. eiga í að lágmarki fjórum fyrirtækjum, til að eiga möguleika á sigri.
Einstaklingum sem verða uppvísir að misnotkun upplýsinga um verðþróun eða gerast sekir um innherjasvik verður vikið úr keppni.
Aðeins er hægt að kaupa og selja eignir á opnunartíma íslensku kauphallarinnar, sem er frá 9:30 til 15:30 alla virka daga.