25.07.2024

Af­koma Ari­on banka á öðr­um árs­fjórð­ungi 2024

Lykiltölur á öðrum ársfjórðungi 2024

  • Hagnaður Arion banka á 2F 2024 var 5,5 ma.kr., samanborið við 7,1 ma.kr. á 2F 2023

  • Arðsemi eiginfjár var 11,5%, samanborið við 15,5% á 2F 2023

  • Hagnaður á hlut var 3,86 krónur, samanborið við 4,84 á 2F 2023

  • Hreinn vaxtamunur var 3,2%, óbreyttur frá 2F 2023

  • Góður fjórðungur í þóknanastarfsemi sem skilar 4,0 mö.kr., samanborið við 4,2 ma.kr. á 2F 2023

  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 1% í samanburði við 2F 2023

  • Rekstrarkostnaður jókst um 19,1% samanborið við 2F 2023, að stórum hluta vegna sáttar við Fjármálaeftirlitið og greiðslu sektar

  • Virkt skatthlutfall var hátt eða 32,6% og skýrist af óhagstæðri samsetningu tekna og gjalda

  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 46,2%, samanborið við 39,4% á 2F 2023

  • Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 1,6% á fjórðungnum

  • Lán til viðskiptavina jukust um 2,0% á fjórðungnum. Hækkun á lánum til fyrirtækja var 1,4% og 2,6% á lánum til einstaklinga, einkum íbúðalán

  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 5,6% á fjórðungnum

  • Endurkaup námu 4,5 mö.kr. á fjórðungnum og frekari 2,5 ma.kr. endurkaup hefjast 26. júlí

  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 22,8% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,5% í lok júní. Hlutföllin taka tillit til væntrar arðgreiðslu sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans og endurkaupa eigin bréfa að fjárhæð 3,0 ma.kr. sem samþykkt hefur verið af stjórn og Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirlitinu.

  • Lykiltölur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2024

  • Hagnaður Arion banka var 9,9 ma.kr. á 6M 2024, samanborið við 13,4 ma.kr. á 6M 2023

  • Arðsemi eiginfjár var 10,2%, samanborið við 14,5% á 6M 2023

  • Hagnaður á hlut var 6,92 krónur, samanborið við 9,17 á 6M 2023

  • Hreinn vaxtamunur var 3,1%, óbreyttur frá 6M 2023

  • Hreinar þóknanatekjur námu 7,3 mö.kr. á fyrri hluta ársins og dragast saman frá fyrra ári. Sterkur fjórðungur í þóknunum eftir slakan fyrsta fjórðung

  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), lækka um 1% samanborið við 6M 2023

  • Rekstrarkostnaður hækkar um 9,8% samanborið við sama tímabil 2023, að hluta til vegna sáttar við Fjármálaeftirlitið og greiðslu sektar

  • Virkt skatthlutfall var hátt eða 35,1% og skýrist af óhagstæðri samsetningu tekna og gjalda

  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 47,2%, samanborið við 43,0% á 6M 2023

  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 2,8% frá árslokum 2023

  • Greiddur var 13,1 ma.kr. arður á 1F sem samsvarar 9,0 krónum á hlut

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

“Það er margt mjög gott í uppgjöri bankans á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að við náum ekki 13% arðsemismarkmiði okkar. Góður vöxtur er í innlánum og jukust vaxtatekjur á milli fjórðunga sem og þóknanatekjur þar sem við sjáum aukin umsvif þegar kemur að flestum þjónustuþáttum okkar en einna mest í eignastýringu, kortaþjónustu og lánveitingum. Þannig jukust eignir í stýringu um 10% á fyrri helmingi ársins, náðu í fyrsta sinn yfir 1.500 ma.kr og nálgast nú stærð efnahagsreiknings samstæðunnar. Tryggingastarfsemin gekk einnig vel og var 13% tekjuvöxtur miðað við annan ársfjórðung í fyrra. Afkoma Varðar var jákvæð þrátt fyrir að á tímabilinu hafi stærsta einstaka tjón í sögu félagsins átt sér stað og skýrist það m.a. af þátttöku endurtryggjenda. Eiginfjárstaða bankans er áfram mjög traust og hlutfall eiginfjárþáttar 1 er 18,5%, eða 3,3% yfir lögbundnu lágmarki. Lausafjárstaða bankans er jafnframt mjög góð og gott jafnvægi í fjármögnun.

Eitt af því sem hafði áhrif á arðsemi fjórðungsins er sátt sem bankinn gerði við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands undir lok annars ársfjórðungs þar sem bankinn féllst á að greiða sekt að upphæð 585 milljónir króna. Hefði ekki komið til þessarar sáttargreiðslu þá hefði arðsemi bankans á fjórðungnum numið 12,7%. Sáttin við fjármálaeftirlitið var gerð í kjölfar könnunar eftirlitsins sem fram fór sumarið 2022 og sneri að aðgerðum bankans gegn peningaþvætti. Í könnun fjármálaeftirlitsins komu í ljós annmarkar á framkvæmd bankans og var athugasemdum strax tekið alvarlega og ráðist í allsherjar endurskoðun á framkvæmdinni. Við höfum nú styrkt til muna þá þætti í starfseminni sem snúa að hlutverki okkar í vörnum gegn peningaþvætti með því meðal annars að efla okkar kerfi og fjölga því starfsfólki sem sinnir þessu mikilvæga hlutverki.

Arion banki hefur verið leiðandi þegar kemur að fyrirtækjaráðgjöf hér á landi síðustu ár og á öðrum ársfjórðungi var bankinn ráðgefandi í einu kauphallarskráningu það sem af er ári þegar Kaldvík var skráð á First North markaðinn. Arion banki er jafnframt ráðgjafi JBT í yfirtökutilboði félagsins í hlutafé Marel. Er óhætt að fullyrða að nái áform JBT fram að ganga þá verði um einhver stærstu viðskipti síðasta áratugar hér á landi að ræða.
Áhersla okkar á traustan rekstur og framúrskarandi fjármálaþjónustu þar sem þægileg stafræn þjónusta er í forgrunni hefur leitt til þess að Arion banki hefur verið valinn banki ársins hér á landi síðustu þrjú ár af fjármálatímaritinu The Banker sem er gefið út af The Financial Times. Nýlega valdi svo tímaritið Euromoney Arion sem banka ársins 2024 á Íslandi og jafnframt besta stafræna banka landsins. Segja má að þetta sé í samræmi við niðurstöður könnunar Maskínu sem birtar voru í júní og sýna að viðskiptavinir bankanna telja Arion appið besta bankaappið hér á landi, áttunda árið í röð. Við erum þakklát fyrir þessa jákvæðu endurgjöf og nýtum hana sem hvatningu til að gera enn betur. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera leiðandi þegar kemur að stafrænni þjónustu eins og sést vel á þeirri fjölbreyttu þjónustu sem er viðskiptavinum aðgengileg í Arion appinu. Þar fæst með einföldum hætti yfirsýn yfir allt sem tengist fjármálum; svo sem kortareikninga, sparnað, tryggingar, lífeyrissparnað og verðbréfaeign. Nýjustu viðbæturnar eru annars vegar það sem við köllum Arion fjölskylda, en þar geta forráðamenn sjálfkrafa fengið sýn á reikninga barna sinna og deilt sýn á eigin fjármál með maka, og hins vegar Arion endurgreiðsla, sem gefur þeim viðskiptavinum Arion banka sem eru í viðskiptum við Vörð kost á 5% endurgreiðslu tryggingaiðgjalda ef þeir eiga tjónlaust ár.

Arion banki vinnur áfram að þróun Arnarlandsins í Garðabæ og Blikastaðalandsins í Mosfellsbæ. Í undirbúningi er uppbygging fjölbreyttrar íbúabyggðar ásamt tengdri þjónustu. Arion banki á 51% í Arnarlandinu þar sem gert er ráð fyrir að reisa um 500 íbúðir og um 30 þúsund fermetra af atvinnu- og verslunarhúsnæði. Blikastaðalandið er alfarið í eigu bankans og er um 100 hektarar að stærð. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir uppbyggingu um 1.200 íbúða á um 30-35 hekturum og uppbyggingu innviða eins og skóla og leikskóla. Bæði þessi verkefni eru unnin í góðu samstarfi við sveitarfélögin og munu auka framboð íbúðahúsnæðis á næstu árum.”

Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 26. júlí kl. 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður föstudaginn 26. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
25. mars 2026

Aðalfundur Varðar

Vörður tryggingar hf. og Vörður líftryggingar hf. hafa verið dótturfélög Arion banka um árabil. Vörður líftryggingar hefur verið hluti af Arion samstæðunni í yfir 30 ár og Vörður tryggingar í rúman áratug.

Lesa meira
20. mars 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 26. mars að því undanskildu að breytingar á óverðtryggðum íbúðalánavöxtum föstum til 3ja ára taka gildi strax.

Lesa meira
19. mars 2026

Húsnæðismarkaður á krossgötum: Hvað nú?

Arion banki kynnti í morgun nýja skýrslu um húsnæðismarkaðinn. Farið var yfir þróun markaðarins og þá drifkrafta sem hafa vegið þyngst. Þá var spáð í spilin og fjallað um mögulega áhrifaþætti fram á veginn.

Lesa meira
Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 - Arion banki