29.07.2026

Af­koma Arion banka á öðr­um árs­fjórð­ungi 2026

Lykiltölur á öðrum ársfjórðungi 2026

  • Hagnaður Arion banka* var 8,1 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 9,8 ma.kr. á 2F 2025

  • Arðsemi eiginfjár* var 15,5%, samanborið við 19,7% á 2F 2025

  • Hagnaður á hlut var 5,92 krónur, samanborið við 6,59 krónur á 2F 2025

  • Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir var 3,5%, óbreyttur frá 2F 2025

  • Hreinar þjónustutekjur námu 4,0 mö.kr., samanborið við 4,6 ma.kr. á 2F 2025

  • Rekstur Varðar skilaði 0,5 ma.kr. hagnaði, samanborið við 0,8 ma.kr. hagnað á 2F 2025. Samsett hlutfall var 87,9% á 2F 2026 samanborið við 79,4% á sama fjórðungi 2025

  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 0,8% í samanburði við 2F 2025

  • Rekstrarkostnaður jókst um 10,9%, sem samsvarar 732 m.kr., í samanburði við 2F 2025

  • Virkt skatthlutfall var 28,5% á fjórðungnum

  • Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 40,4%, samanborið við 36,6% á 2F 2025

  • Kostnaðarhlutfall var 37,2%, í samanburði við 31,4% á 2F 2025

  • Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 3,6% á fjórðungnum

  • Lán til viðskiptavina jukust um 65,4 ma.kr. eða 4,8% á fjórðungnum

  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 21,6% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 17,7% í lok júní. Hlutföllin taka tillit til væntrar arðgreiðslu sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans og útistandandi endurkaupa eigin bréfa að fjárhæð 2,7 ma.kr. sem samþykkt hefur verið af stjórn og Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirlitinu.

Lykiltölur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026

  • Hagnaður Arion banka* var 15,4 ma.kr. á 6M 2026, samanborið við 16,2 ma.kr. á 6M 2025

  • Arðsemi eiginfjár* var 14,6%, samanborið við 16,1% á 6M 2025

  • Hagnaður á hlut var 11,25 krónur, samanborið við 11,22 á 6M 2025

  • Hreinn vaxtamunur var 3,6%, samanborið við 3,3% á 6M 2025

  • Hreinar þóknanatekjur námu 7,9 mö.kr. á fyrri hluta ársins í samanburði við 9,1 ma.kr. á 6M 2025

  • Hagnaður Varðar nam 0,4 mö.kr á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 0,2 ma.kr. á sama tíma 2025. Samsett hlutfall nam 94,3% samanborið við 89,4% á 6M 2025

  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), hækka um 9,7% samanborið við 6M 2025

  • Rekstrarkostnaður jókst um 11,9% eða 1,6 ma.kr. í samanburði við 6M 2025, aðallega vegna hærri launakostnaðar, aðkeyptrar þjónustu og tölvukostnaðar

  • Virkt skatthlutfall var 31,1%

  • Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 40,2%, samanborið við 39,4% á 6M 2025

  • Kostnaðarhlutfall var 37,8%, samanborið við 32,9% á 6M 2025

  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 5,3% frá árslokum 2025, einkum útlán til viðskiptavina

  • Arðgreiðsla og kaup eigin hlutabréfa námu samtals 23,0 ma.kr. á 6M 2026

* Hagnaður / arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

„Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár. Arion samstæðan veitir viðskiptavinum afar fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu og gekk kjarnastarfsemin okkar vel á ársfjórðungnum. Eins og síðustu ársfjórðunga var vöxtur í innlánum sem studdi við útlánavöxt, sérstaklega til fyrirtækja. Einnig var áfram mjög góður gangur í tryggingastarfsemi Varðar sem og sjóðastarfsemi Stefnis. Eigin- og lausafjárstaða er sem fyrr góð og styrkir okkur í áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn.

Í vor opnuðu Arion banki og Vörður nýtt sameiginlegt útibú í Reykjanesbæ og er það fyrsta nýja útibúið um árabil sem Arion banki opnar. Vörður á sér hins vegar langa sögu í Reykjanesbæ, enda verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Opnun útibúsins er mikilvægt skref í að auka þjónustu okkar við íbúa Reykjaness og er allt starfsfólk útibúsins búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.

Snemma á síðasta ári kynntum við til sögunnar nýtt og öflugt fríðindakerfi, Arion fríðindi, sem miðar að því að hámarka þann ábata sem viðskiptavinir Arion geta haft af því að nýta sér fjölbreytta þjónustu okkar. Á öðrum ársfjórðungi kynntum við svo til leiks viðbót við fríðindakerfið, Arion framtíð, sem er sérstaklega hugsuð fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára. Með þessu viljum við styðja við unga fólkið þegar það tekur fyrstu skref sín á vinnumarkaði og þarf að huga að tryggingum, framtíðarsparnaði og fyrstu íbúðakaupunum.

Arion appið var valið besta bankaappið á Íslandi af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – tíunda árið í röð. Í Arion appinu má sinna öllum daglegum bankaviðskiptum, stunda hlutabréfaviðskipti og kaup í sjóðum Stefnis og halda utan um lífeyrismálin og tryggingar frá Verði. Sem fyrr munum við nýta þessa viðurkenningu sem hvatningu til að gera gott app enn betra með það að markmiði að uppfylla þarfir viðskiptavina okkar, einstaklinga og fyrirtækja, þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Blikastaðalandið í Mosfellsbæ er komið í söluferli sem er aðeins opið fjárfestum sem hafa til að bera reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna og búa yfir fjárhagslegum styrk til að halda áfram uppbyggingu landsins. Verði söluferlið árangursríkt þá verður það hlutverk nýrra eigenda, í samstarfi við Mosfellsbæ, að tryggja vandaða uppbyggingu í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið í nýju skipulagi svæðisins. Við mótun skipulagsins höfum við lagt áherslu á samspil byggðar og náttúru, góðar samgöngur og mannvænt umhverfi þar sem gott verður að búa.“

Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 30. júlí kl. 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 30. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. júlí 2026

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 15,5% á öðrum ársfjórðungi 2026 og 14,6% á fyrri helmingi ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 30. júlí kl. 8:30.

Lesa meira
10. júlí 2026

Arion banki hefur söluferli á Blikastaðalandi

Arion banki hefur ákveðið að setja eignarhlut sinn í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ í söluferli. Söluferlið er opið fjárfestum sem hafa til að bera reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna og búa yfir nægjanlegum fjárhagslegum styrk að mati bankans.

Lesa meira
09. júlí 2026

Arion banki ráð­gjafi kaup­enda við kaup á Nicetra­vel

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi kaupenda við kaup á öllu hlutafé í Nicetravel ehf.

Lesa meira