08.03.2024

Al­þjóð­legur bar­áttu­dag­ur kvenna + Frá­bær þátt­taka í Kon­ur fjár­festum

Í dag, 8. mars, er haldið upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna úti um heim allan. Þetta er tækifæri til að líta um öxl og fagna þeim skrefum sem tekin hafa verið til að jafna hlut kynjanna en jafnframt áskorun um að horfa fram á veginn og spyrja sig hvað enn megi betur fara.

Af þessu tilefni er ánægjulegt að geta þess að hátt í tvö þúsund konur hafa á síðustu vikum sótt þá viðburði sem farið hafa fram undir formerkjum Konur fjárfestum átaksins okkar í Arion. Færri konur hafa komist að en vilja – en við reynum að bæta úr því enda fjölmargt á döfinni.

Með Konur fjárfestum átakinu viljum við í Arion leggja okkar af mörkum til að jafna þátttöku kynjanna á fjármálamarkaði. Enn þann dag í dag ríkir ekki jafnræði milli kynja þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign eða þátttöku á fjármálamarkaði. Breytum því!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira