02.09.2021

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 3. september næstkomandi.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,20 prósentustig og verða 3,74%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,14 prósentustig og verða 4,49%

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,20 prósentustig og verða 4,90%

Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,20 prósentustig og verða 5,30%

Yfirdráttur og greiðsludreifing

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,25 prósentustig

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 0,25 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir

Vextir verðtryggðra íbúðalána og verðtryggðir kjörvextir haldast óbreyttir.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira