04.03.2020

Arion banki býður nýja teg­und viðbótar­lána fyrir þá sem taka íbúða­lán hjá lífeyris­sjóð­um

Arion banki býður nú viðbótaríbúðalán sem gera fleirum mögulegt að nýta lífeyrissjóðslán til að fjármagna kaup á íbúðarhúsnæði.

Lífeyrissjóðir bjóða almennt hagstæða vexti en lægri lánshlutföll og lánsfjárhæðir en gengur og gerist og því hafa ekki allir átt þess kost að nýta sér lán lífeyrissjóða til húsnæðiskaupa. Á það sérstaklega við um þá sem ekki eiga mikið eigið fé til kaupanna. Með viðbótarlánum Arion banka er hægt að fá lán fyrir því sem upp á vantar þannig að heildarlánshlutfall geti orðið allt að 80% af kaupverði en allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða. Við endurfjármögnun getur lánshlutfallið verið 80%.

Með viðbótaríbúðarlánum er Arion banki sérstaklega að koma til móts við yngri og efnaminni viðskiptavini sem hafa ekki haft tök á að nýta sér lífeyrissjóðslán til íbúðakaupa vegna lánshlutfalls eða hámarksfjárhæða. Bankinn vill eiga samstarf við sem flesta lífeyrissjóði um viðbótaríbúðalán til þess að auðvelda lántökum ferlið og gera það sem þægilegast fyrir lántakendur.

Viðbótaríbúðalán geta verið verðtryggð eða óverðtryggð, þau bera breytilega vexti og lánstími getur verið frá 5 árum til 25 ára. Lánin eru að svo stöddu einvörðungu afgreidd í útibúum Arion banka um land allt en ekki á vef bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira