26.01.2021

Arion banki býður upp á fjar­fundi með ráð­gjöf­um

Arion banki býður viðskiptavinum sínum nýja leið til að sækja sér fjármálaþjónustu og -ráðgjöf bankans. Til viðbótar við fyrirfram bókaða fundi í útibúum er nú hægt að bóka fjarfund með ráðgjafa þannig að ekki þarf að koma í útibúið. Hægt er að nýta snjallsímann, spjaldtölvuna eða tölvuna til að fá ráðgjöf og þjónustu augliti til auglitis, hvar sem er.

Þjónustan er bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki:

Einstaklingar

  • Fjármálaráðgjöf vegna íbúðalána

  • Sparnaðarráðgjöf

  • Ráðgjöf vegna lífeyrismála

  • Ráðgjöf vegna trygginga

  • Útgreiðsluráðgjöf vegna lífeyrissparnaðar

  • Ráðgjöf vegna greiðsluerfiðleika

Fyrirtæki

  • Ráðgjöf vegna fjármögnunar

  • Aðstoð við vörur og þjónustu

  • Notendaaðstoð


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira