10.07.2026

Arion banki hef­ur sölu­ferli á Blikastaðalandi

Arion banki hefur ákveðið að setja eignarhlut sinn í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ í söluferli. Söluferlið er opið fjárfestum sem hafa til að bera reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna og búa yfir nægjanlegum fjárhagslegum styrk að mati bankans.

Markmiðið með söluferlinu er að fá að verkefninu aðila sem eru vel í stakk búnir til að halda áfram uppbyggingu Blikastaða í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið með nýju skipulagi og samstarfi við Mosfellsbæ og verður hlutverk þeirra að tryggja vandaða og skilvirka framkvæmd með áherslu á langtímahugsun og faglega uppbyggingu svæðisins.

Blikastaðaland er eitt stærsta þróunarsvæði höfuðborgarsvæðisins og nær yfir um 98 hektara landsvæði í Mosfellsbæ. Þar er fyrirhuguð uppbygging nýs og fjölbreytts íbúðahverfis með blöndu íbúðarhúsnæðis, þjónustu og atvinnustarfsemi. Rík áhersla er lögð á samspil byggðar og náttúru, góðar samgöngur, mannvænt umhverfi og vandaða hönnun sem styður við lífsgæði íbúa og nærumhverfis.

Blikastaðaland er í eigu Arion banka í gegnum dótturfélag bankans, Landey ehf., og félagið Blikastaðaland ehf. sem stýrir uppbyggingu verkefnisins.

Nánari upplýsingar um söluferlið veitir fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og skal fyrirspurnum beint á netfangið blikastadir@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira