29.03.2021

Arion banki hlýt­ur verð­laun fyrir lífeyris­mál í Arion app­inu

Íslensku vefverðlaunin voru afhent 26. mars síðastliðinn en árlega veita Samtök vefiðnaðarins, SVEF, verðlaun fyrir þá vefi og veflausnir sem þykja skara fram úr.

Að þessu sinni hlaut Arion banki verðlaun fyrir tæknilausn ársins fyrir lífeyrismál í Arion appinu. Í umsögn dómnefndar kemur fram:

,,Tæknilausn ársins er virkilega vel leyst útfærsla á annars flóknum og yfirgripsmiklum upplýsingum. Lausninni tekst að draga vel saman á notendavænan og fallegan hátt flóknar upplýsingar af mörgum stöðum. Tæknilausnin ráðleggur notanda og dregur fram kjarnann í vafaatriðum tengdum lífeyrismálum.“

Við hjá Arion banka erum afar stolt af árangrinum og þökkum kærlega fyrir viðurkenninguna. Við munum halda ótrauð áfram að þróa stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini og að bjóða upp á framúrskarandi stafræna bankaþjónustu.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira