10.10.2019
Arion banki lækkar vexti
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast frá og með deginum í dag.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,29% og verða 5,49%
Bílalán og bílasamningar lækka um 0,25%
Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10%
Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,25%.
Hvað innlán varðar þá munu breytilegir innlánsvextir bankans í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05%-0,25%.
Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.