11.09.2019
Arion banki lækkar vexti
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánsvextir Arion banka breytast frá og með deginum í dag.
Vextir íbúðalána munu breytast á eftirfarandi hátt:
Óverðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir vextir lækka um 0,40% og verða 5,79%
Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,20% og verða 5,78%
Verðtryggðir íbúðalánavextir vextir lækka um 0,10%
Fastir 5 ára vextir verða 3,09%
Breytilegir vextir verða 3,49%
Almennir kjörvextir, óverðtryggðir og verðtryggðir, munu lækka um 0,10%.
Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,25%.
Hvað innlán varðar þá munu breytilegir innlánsvextir bankans í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05%-0,25%.
Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.