27.03.2020

Arion banki lækk­ar vexti vegna fyrir­hug­aðr­ar lækk­un­ar á banka­skatti

Áform stjórnvalda um að lækka bankaskatt skapa svigrúm til breytinga á vöxtum til hagsbóta fyrir viðskiptavini. Bankaskattur leggst með beinum hætti á fjármögnun banka og hefur því neikvæð áhrif á þau vaxtakjör sem bankar geta boðið sínum viðskiptavinum. Bankaskattur hér á landi er töluvert hærri en í nágrannalöndum okkar og verður það enn þrátt fyrir fyrirhugaða lækkun.

Lækkun bankaskattsins gerir okkur kleift að lækka vexti á verðtryggðum og óverðtryggðum íbúðalánum sem og kjörvexti bankans um 0,15% frá og með 1. apríl.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Verðtryggð íbúðalán
  • Verðtryggðir fastir vextir til 5 ára eru 2,79% en verða 2,64%

  • Verðtryggðir breytilegir vextir eru í dag 3,19% en verða 3,04%

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir fastir vextir til 5 ára eru 5,24% en verða 5,09%

  • Óverðtryggðir breytilegir vextir eru 4,19% en verða 4,04%

Bílalán
  • Óverðtryggðir kjörvextir bílafjármögnunar eru 5,65% verða 5,50%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir kjörvextir eru 5,25% en verða 5,10%

  • Verðtryggðir kjörvextir eru 4,05% en verða 3,90%

Nánar má lesa um vexti Arion banka í vaxtatöflu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira