15.06.2021

Arion banki lýk­ur vel heppn­uðu út­boði fyrir Ice­land Sea­food In­ternati­onal

Iceland Seafood International, í samstarfi við markaðsviðskipti Arion banka, lauk á föstudaginn útboði á skuldabréfum að fjárhæð 3,4 milljarðar íslenskra króna að nafnvirði. Um var að ræða lokað útboð á nýjum fjögurra ára flokki ICESEA 25 06 sem hópur fjárfesta keypti á pari eða genginu 100,0 en bréfið ber 5,65% nafnvexti sem eru greiddir hálfsárslega.

Útgáfan styður við frekari vöxt Iceland Seafood International. Útgáfan markar tímamót þar sem um er að ræða fyrstu útgáfu óveðtryggðra fyrirtækjaskuldabréfa rekstrarfélaga á markaði í vel á annan áratug.

„Iceland Seafood International hefur á síðustu árum nýtt sér vel kosti markaðarins til fjárfestinga og verðmætasköpunar. Ég er sannfærð um að félagið mun halda áfram á þeirri braut og fleiri félög sigli í kjölfarið. Markaður með fyrirtækjaskuldabréf er í sókn og það er öllum til góðs að hann verði fjölbreyttari því fjölbreyttur markaður stuðlar að hagkvæmari fjármögnun og eykur verðmætasköpun í samfélaginu.

Arion banki hefur verið leiðandi í veltu og skráningum félaga á Nasdaq Iceland síðustu ár. Við styðjum eindregið uppbyggingu verðbréfamarkaðarins og bankinn er reiðubúinn að nýta efnahagsreikning og innviði til efla innlendan verðbréfamarkað,“ segir Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri markaða Arion banka.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira