29.12.2021

Arion banki og Bene­dikt Gísla­son fá viðskipta­verð­laun ársins 2021

Viðskiptablaðið og Frjáls verslun tilkynntu í dag að Arion banki og Benedikt Gíslason, bankastjóri, væru handhafar viðskiptaverðlauna 2021. Einnig tilkynnti Markaður Fréttablaðsins að Benedikt Gíslason væri viðskiptamaður ársins 2021. Áður hafði The Banker, fjármálatímarit í eigu The Financial Times, tilkynnt um val sitt á Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2021.

Þetta eru góðar viðurkenningar á þeim árangri sem starfsfólk, viðskiptavinir og aðrir samstarfsaðilar Arion banka hafa náð á árinu sem er að líða.

Við þökkum gott og árangursríkt samstarf á árinu með óskum um gleðilegt nýtt ár.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira