09.07.2026

Arion banki ráð­gjafi kaup­enda við kaup á Nicetra­vel

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi kaupenda við kaup á öllu hlutafé í Nicetravel ehf.

Nicetravel er rótgróið ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur byggt upp sterka stöðu á íslenskum ferðaþjónustumarkaði. Frá stofnun hefur félagið vaxið jafnt og þétt og þróast í öflugan rekstur með sérstöðu á markaði fyrir skipulagðar ferðir um Ísland.

Félagið hefur skapað sér sterka stöðu á grundvelli reynslu, gæða í þjónustu og markvissrar uppbyggingar á starfsemi sinni. Viðskiptin skapa góðan grundvöll fyrir áframhaldandi þróun félagsins undir nýju eignarhaldi.

Við óskum kaupendum og seljendum til hamingju með viðskiptin og þökkum öllum hlutaðeigandi aðilum fyrir farsælt samstarf.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira