05.01.2021

Arion banki stærst­ur á hluta­bréfa­markaði fimmta ár­ið í röð

Arion banki var með stærstu hlutdeild markaðsaðila á hlutabréfamarkaði árið 2020. Bankinn velti rétt tæpum 261 milljarði króna á hlutabréfamarkaði sem samsvarar 21,8% hlutdeild. Þetta er jafnframt fimmta árið í röð sem bankinn er stærstur á hlutabréfamarkaði. Bankinn hefur verið með mestu hlutdeildina á hlutabréfamarkaðnum sex af síðustu sjö árum.

Arion banki var einnig með stærstu hlutdeildina á First North markaðinum eða 42,2% hlutdeild.

Á skuldabréfamarkaði var Arion banki með 16,1% hlutdeild sem er þriðja stærsta hlutdeild markaðsaðila.

Markaðshlutdeild Arion banka endurspeglar traust sem viðskiptavinir sýna bankanum til að eiga viðskipti fyrir þeirra hönd á verðbréfamarkaði. Það er ánægjulegt að sjá kraftmikinn verðbréfamarkað um þessar mundir og vaxandi áhuga almennings.

Verðbréfamarkaður leikur lykilhlutverk við fjármögnun atvinnulífs, heimila og hins opinbera. Hann er vettvangur fagfjárfesta og almennings til að ávaxta sparnað, með beinum hætti og í gegnum sjóði.

Stuðningur við uppbyggingu á innlendum verðbréfamarkaði er metnaðarmál fyrir Arion banka. Bankinn hefur haft umsjón með skráningu fleiri félaga á markað en nokkur annar markaðsaðili og Arion banki var í forystu um uppbyggingu markaðar með sértryggð skuldabréf.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira