17.08.2021

Arion banki styður áfram við verk­efni Skóg­rækt­ar­félags Ís­lands

Nýlega undirrituðu Arion banki og Skógræktarfélag Íslands samning vegna áframhaldandi stuðnings bankans við félagið. Styrkurinn, sem er til þriggja ára, verður nýttur til að fjármagna verkefnið Skógarvist, skógargátt og lýðheilsa, sem er ætlað að hvetja til útivistar og bættrar lýðheilsu. Einnig nýtist styrkurinn í innleiðingu á forritinu Avenza sem ætlað er að halda utan um kortlagningu skógræktar með stafrænum hætti og þar með ná betri yfirsýn yfir útbreiðslu nýrra skóga og bindingu þeirra.

Arion banki hefur um árabil styrkt Skógræktarfélag Íslands. Bankinn hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og á að auki í samstarfi við Kolvið varðandi mótvægisaðgerðir. Kolviður gróðursetti um 4.700 tré til að vega upp á móti losun bankans á árinu 2020 vegna reksturs, þ.e. húsnæðis og bíla, en einnig vegna flugferða og leigubílaferða, sorps og samgangna starfsfólks til og frá vinnu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira