07.09.2026

Arion styrk­ir Börn með krabba­mein

Í tilefni af treyjudeginum svokallaða komu starfsmenn Arion í fjölbreyttum íþróttatreyjum til vinnu þann 4. september síðastliðinn og lögðu þannig sitt af mörkum til að vekja athygli á söfnunarátaki á vegum Barna með krabbamein. Fjölbreyttar treyjur settu skemmtilegan svip á starfsstöðvar Arion vítt og breytt um landið og fylltu þær gleði, lífi og litum – en mörg hundruð starfsmenn skörtuðu uppáhaldstreyjunum sínum.

Treyjudagurinn er árlegt framtak sem hvetur einstaklinga og fyrirtæki til að styðja við börn sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Við erum stolt af því að styðja Börn með krabbamein og hjálpa til við að auka ásýnd framtaksins og breiða út vitund um málefnið. Allar frekari upplýsingar má nálgast á treyjudagur.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira