21.05.2026

Árs­fund­ur LS­BÍ 2026

Ársfundur LSBÍ verður haldinn 9. júní nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19. Venju samkvæmt opnar húsið um klukkustund fyrr kl. 16.15.

Dagskrá ársfundar:

  • Skýrsla stjórnar

  • Kynning á ársreikningi

  • Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun

  • Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins

  • Stjórnarkosning

  • Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum

  • Kjör endurskoðanda

  • Tillaga um tilnefningu utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd

  • Laun stjórnarmanna

  • Önnur mál

Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Tillögur sem sjóðfélagar óska eftir að teknar verði fyrir skal senda framkvæmdastjóra sjóðsins á netfangið gudmundur.t.ragnarsson@arionbanki.is.

Tilkynningar um framboð skal senda á netfangið gudmundur.t.ragnarsson@arionbanki.is.

Hafir þú spurningar um sjóðinn, hikaðu þá ekki við að hafa samband við starfsfólk Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða senda tölvupóst á lifeyristhjonusta@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira