05.09.2018

Breyt­ingar á verð­skrá taka gildi 6. sept­em­ber

Breytingar á verðskrá Arion banka munu taka gildi fimmtudaginn 6. september. Breytingarnar felast fyrst og fremst í einföldun verðskrárinnar en hún hefur verið stytt um helming í blaðsíðum talið, jafnframt hefur gjaldskrá Kreditkorta verið sameinuð verðskrá bankans til einföldunar.

Stærsta breytingin er sameining yfir 40 liða í eitt 195 kr. þjónustugjald í útibúum og þjónustuveri. Öll sú þjónusta sem fellur undir þjónustugjaldið í útibúum bankans og þjónustuveri er þess eðlis að viðskiptavinir geta sinnt henni sjálfir þegar og þar sem þeim hentar í Arion appinu, netbanka eða hraðbönkum, þeim að kostnaðarlausu.

Hægt er að kynna sér verðskránna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira