17.02.2021

Breyt­ingar hjá Arion banka á Blönduósi

Undanfarin ár höfum við hjá Arion banka gert breytingar á útibúaneti bankans til að aðlaga það að nýrri nálgun í bankaþjónustu þar sem lögð er áhersla á gott aðgengi að stafrænum þjónustuleiðum og sérhæfða fjármálaráðgjöf í útibúum bankans.

Liður í þessum breytingum er að miðvikudaginn 5. maí 2021 mun útibúið okkar á Blönduósi sameinast útibúi bankans á Sauðárkróki og er það síðasti opnunardagur á Blönduósi.

Áfram verður alhliða hraðbanki á Blönduósi þar sem hægt verður að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga, enduropna PIN númer og millifæra. Hraðbankinn verður fyrst um sinn staðsettur í núverandi húsnæði að Húnabraut 5.

Nánari upplýsingar og spurt og svarað má finna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira