13.07.2021

Ein­falt að fjárfesta í inn­lend­um hluta­bréf­um og sjóð­um Stefnis í Arion app­inu

Viðskipti með sjóði og hlutabréf hafa aldrei verið einfaldari. Nú er mögulegt að fjárfesta í innlendum hlutabréfum og sjóðum Stefnis með nokkrum smellum í Arion appinu og fá frábæra heildarsýn og upplýsingar um stöðu fjárfestinga. Staða á öllum eignum er því á einum stað, ásamt hreyfingaryfirliti og línuriti sem sýnir þróun ávöxtunar.

Hægt er að stunda viðskipti með öll félög sem skráð eru á Aðallista íslensku kauphallarinnar ásamt sjóðum Stefnis en til þess að geta hafið viðskipti þarf að stofna verðbréfasafn. Ferlið við stofnun verðbréfasafns er einfalt og fer fram með rafrænum hætti og mögulegt er að hefja viðskipti samdægurs eftir að safnið hefur verði stofnað.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira