22.01.2025

Er svik­ari í sím­an­um?

Svikahrappar leita ýmissa leiða til að hafa fé af fólki, meðal annars að slá á þráðinn í von um dýrmætar persónuupplýsingar, svo sem notendanöfn, lykilorð og annað slíkt. Jafnvel getur símanúmerið sem hringt er úr virst vera númer bankans.

Farðu varlega í spjallið

Mundu að gefa aldrei upp persónuupplýsingar, eins og notandanafn, lykilorð eða merki reikninga í gegnum síma. Ef þú færð grunsamlegt símtal frá aðila sem segist vinna hjá bankanum getur þú til dæmis:

  • Skrifað niður eða vistað númerið sem hringt er úr, ef það sést

  • Beðið viðkomandi að gera grein fyrir sér, t.d. spyrja í hvaða deild aðilinn vinnur

  • Spurt hvernig viðkomandi hafi fengið númerið þitt og upplýsingar um reikningana þína

  • Beðið aðilann að hringja aftur ef hljóðgæði eru lítil

  • Ekki hika við að skella á ef símtalið leggst illa í þig

Vinsamlegast tilkynntu bankanum um slíkar upphringingar, t.d. með því að hringja í þjónustuver í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupósti á netsvik@arionbanki.is.

Nánar má lesa um öryggismál á Öryggismál - Arion banki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira