31.07.2026

Færslur birt­ast tvisvar á færslu­yfirliti – unnið að leið­rétt­ingu

Vegna mistaka þá birtast færslur frá gærdeginum, 30. júlí, tvisvar sinnum í færsluyfirlitum greiðslukorta og geta haft áhrif á ráðstöfunarupphæð kortanna. Unnið er að leiðréttingu í samstarfi við Rapyd.

Ef þetta skapar tímabundin vandkvæði fyrir viðskiptavini okkar þá bendum við annars vegar á að hægt er að hækka heimildir í Arion appinu og netbanka og hins vegar er hægt að hafa samband við okkur með því að senda tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða við Rapyd í síma 525 2000.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira