27.05.2016

Fin­Tech partý Arion banka 3.-4. júní

Þann 3. júní mun FinTech Party Arion banka fara fram í Borgartúni 19. FinTech partý er forritunarkeppni (e. hackathon) þar sem þátttakendur í þverfaglegum teymum vinna samfleytt í 30 klukkustundir við þróun snjallra fjármálalausna.

Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem rætt er við Rakel Óttarsdóttur, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Arion banka, og Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmann nýsköpunar hjá bankanum, þar sem þau útskýra út á hvað FinTech partýið gengur.

Skráningu til þátttöku lýkur 2. júní. Kynntu þér málið ef þú hefur áhuga á að þróa fjármálalausnir framtíðarinnar inn á fintechparty.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira