29.01.2021

Græn inn­lán hjá Arion banka kom­in í rúma fimm millj­arða króna

Umgjörð um græn innlán stækkuð vegna vinsælda Græns vaxtar

Grænn vöxtur er innlánsreikningur Arion banka sem er hugsaður fyrir einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar. Reikningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi og kynnti bankinn hann til leiks um mitt síðasta ár. Fjármunum sem safnast inn á Grænan vöxt er ráðstafað til vistvænna verkefna í samræmi við umgjörð Arion banka um græn innlán.

Viðtökur Græns vaxtar hafa farið fram úr björtustu vonum og um áramótin höfðu viðskiptavinir bankans lagt inn rúma 5 milljarða króna á reikninginn. Fyrst um sinn voru innistæður Græns vaxtar eingöngu notaðar til að fjármagna græn bílalán sem styðja við orkuskipti í samgöngum. Vegna vinsælda Græns vaxtar hefur bankinn nú þurft að útvíkka umgjörð reikningsins og fara nú fjármunir viðskiptavina einnig í að fjármagna verkefni sem styðja við hringrásarhagkerfið, mengunarvarnir og betri stýringu úrgangs.

CIRCULAR Solutions, sem nýverið var keypt af KPMG, tók út umgjörð bankans um græn innlán. Fyrirtækið gegnir hlutverki óháðs aðila og mun árlega gera úttekt á því hve vel fjármögnuð verkefni uppfylla skilyrði umgjarðarinnar og meta umhverfisáhrif þeirra.

Með því að leggja sparnaðinn inn á Grænan vöxt styðja viðskiptavinir bankans við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira