31.03.2026

Hreyfing sem breyt­ir leikn­um

Þriðjudaginn 17. mars síðastliðinn fór fram viðburðurinn „Konur fjárfestum – hreyfing sem breytir leiknum“ í Háskóla Íslands. Voru það Arion banki og Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi sem héldu viðburðinn, á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi.

Á tveimur árum hefur Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka vakið mikla athygli á landsvísu og orðið mikilvægt framlag til umræðu um þátttöku kvenna á fjármálamarkaði. Á viðburðinum var farið yfir árangur verkefnisins til þessa, stöðuna í jafnréttismálum í fjárfestingum og atvinnulífi og þær áskoranir sem fram undan eru.

Ásta Dís Óladóttir, prófessor og stofnandi rannsóknasetursins, Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum Arion banka, og Sigrún Ósk Jakobsdóttir, mannauðsstjóri Advania á Íslandi, fluttu allar erindi.

Á eftir mættust svo þrír leiðtogar úr atvinnulífinu, þau Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, og Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, og ræddu helstu ástæður bakslags í jafnréttismálum, fjárfestingarbil kynjanna og hvað stjórnendur geta gert til að jafna tækifærin. Umræðunum stýrði Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður Rannsóknasetursins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira