07.09.2026

Hús­fyll­ir á við­burði Arion banka um ný­sköp­un og vöxt

Á annað hundrað manns mættu á fræðsluviðburðinn „Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki“ í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, þann 3. september síðastliðinn. Var sviðsljósinu beint að nýsköpun, vexti og þeim fjármögnunarleiðum sem nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum standa til til boða. 

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri, setti viðburðinn og í framhaldinu fjallaði Jarþrúður Ásmundsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka, um fjármögnunarúrræði fyrirtækja í vexti, og Helgi Sævar Þorsteinsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði, kynnti lausnir sem einfalda störf fjármálastjóra og styðja við skilvirkari fjármálastjórnun. 

Jarþrúður fylgdi bráðskemmtilegu erindi sínu svo eftir með líflegu sófaspjalli við þau Andra Heiðar Kristjánsson (Frumtak Ventures), Þórhildi Eddu Gunnarsdóttur (Sweeply) og Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur (Hopp Reykjavík). Deildu gestir þar góðum reynslusögum af sigrum jafnt sem og ósigrum og ákvörðunum sem mótað hafa bæði rekstur þeirra og fjárfestingarákvarðanir. Léttleikinn var aldrei langt undan.  

Við þökkum öllum sem mættu hjartanlega fyrir komuna og hlökkum til að halda áfram að búa til vettvang fyrir lifandi samtal, fræðslu og tengslamyndun í íslensku nýsköpunarumhverfi. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira