17.04.2026

Hvernig stækk­arðu fyrir­tækið og ein­fald­ar fjármál­in?

Fimmtudaginn 16. apríl síðastliðinn hélt Arion banki vel sóttan fræðsluviðburð í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, þar sem bæði einstaklingar og fyrirtæki í rekstri fræddust um hvernig styrkja mætti fjármálahlið rekstursins.

Hákon Hrafn Gröndal, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, hélt opnunarerindi og Eymar Jansen, fyrirtækjaráðgjafi, fór vandlega yfir þær lausnir Arion banka sem einfalda daglegt líf fjármálastjórans. Þá flutti Elísabet Árnadóttir, svæðisstjóri fyrirtækja hjá Arion banka, ítarlegt erindi undir yfirskriftinni „Hvernig stækkarðu fyrirtækið þitt?“, þar sem hún fór í saumana á sjóðsstreymi, gerð áætlana og hvernig halda megi yfirsýn um reksturinn.

Undir lok viðburðarins fengum við svo heimsókn frá tveimur kröftugum manneskjum úr atvinnulífinu sem báðar deildu reynslu sinni af atvinnurekstri, jafnt sigrum sem mistökum. Elísabet ræddi við þau Ragnhildi Ágústsdóttur, eiganda og stofnanda LavaShow, og Jóhannes Egilsson, eiganda Von Iceland. Bæði eiga þau að baki áhugaverðan feril og höfðu margvíslegum fróðleik að miðla. Samtalið var í senn skemmtilegt og upplýsandi.

Að lokinni formlegri dagskrá gafst gestum færi á að ræða við sérfræðinga fyrirtækjasviðs Arion banka í góðu tómi og gæða sér á léttum veitingum.

Aðsókn að viðburðinum var sérdeilis góð og því ljóst að mikil eftirspurn er eftir fræðslu af þessum toga. Við ætlum að bregðast við því og halda fleiri sambærilega viðburði á næstunni, undir yfirskriftinn Allt fyrir fjármálastjórann. Markmiðið er að veita hagnýta innsýn í hinar margvíslegu hliðar fyrirtækjareksturs og sýna hvernig einfalda megi fjármálin með skýrum og skilvirkum lausnum. Efnahagsumhverfið í dag er vissulega krefjandi og nokkur óvissa fram undan en í slíku árferði skapast einnig ný tækifæri – til hagræðingar, betri yfirsýnar, markvissari ákvarðanatöku. Við hjá Arion banka viljum vera dyggur samstarfsaðili viðskiptavina okkar á slíkum tíma, taka með þeim umræðuna um næstu skref og finna leiðir til að styðja við vöxt og þróun atvinnulífsins í landinu. Sjáumst á næsta viðburði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira