28.11.2024

Kon­ur heilli kyn­slóð á eft­ir körl­un­um

Reykjavík Global Forum 2024 var haldin 10.-12. nóvember síðastliðinn og sameinaði sem fyrr fjölbreyttan hóp leiðtoga og áhrifafólks úr ýmsum geirum alþjóðasamfélagsins. Var þetta sjöunda árið í röð sem þessi ráðstefna fer fram.

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka, flutti þar erindi og beindi sjónum að átaksverkefni Arion banka, „Konur fjárfestum“.

Góður árangur Íslands í jafnréttismálum skili sér út í atvinnulífið

Iða Brá sagði að mikill árangur hefði náðst í jafnréttismálum á Íslandi en benti á að það skyti skökku við að sá árangur hefði ekki skilað sér meira út í atvinnulífið og stuðlað að aukinni fjármagnseign og fjárfestingum kvenna.

„Á Íslandi verma konur annað hvert sæti á Alþingi,“ sagði Iða Brá. „Þá kusum við nýlega konu til forseta en konur fengu raunar þrjá fjórðu atkvæða í þeim forsetakosningum. Staðan er því almennt til fyrirmyndar hjá kjörnum fulltrúum.“

„Öðru gegnir um stöðuna í atvinnulífinu. Gögn sýna að talsvert ójafnræði ríkir þar enn á milli kynja. Um 80% stórra fyrirtækja hér á landi er stýrt af karlmönnum. Ísland er með eitt háþróaðasta lífeyriskerfi heims; það er fullfjármagnað og nemur næstum tvöfaldri vergri landsframleiðslu þjóðarinnar. Hins vegar eru konur eftirbátar karla í að byggja upp lífeyrisréttindi – heilli kynslóð á eftir körlunum.“

Seinna í erindi sínu sagði Iða Brá að með nokkurri einföldun mætti segja að karlar ættu um 65% af öllum eignum á Íslandi en konur um 35%. „Konur hafa hins vegar styrkt stöðu sína og saxað á forskotið en ef við höldum áfram á sama hraða mun taka 70 ár að brúa þetta bil. Það er auðvitað óásættanlegt. Eitthvað þarf að gera eitthvað til að hraða þróuninni.“

Af þessum sökum hafi Arion banki ýtt Konur fjárfestum verkefninu af stað. Bankinn vilji hjálpa konum að hlúa að fjárhagslegu öryggi sínu og sjálfstæði og stuðla að því að þær geti hrint hugmyndum sínum í framkvæmd, til að mynda með því að stofna fyrirtæki.

„Ísland ætti hér að vera í fararbroddi og varða leiðina fram á við, vera öðrum ríkjum til fyrirmyndar,“ sagði Iða Brá.

Fjölbreyttur hópur frummælenda

Meðal annarra þátttakenda á Reykjavík Global Forum voru að þessu sinni Halla Tómasdóttir, forseti Íslands; Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands og formaður The Elders; Marsha Cooke, framkvæmdastjóri ESPN Films; Rothna Begum, fulltrúi Clooney Foundation for Justice; Gary Barker, stofnandi Equimundo; Paula Cox, fyrrverandi forsætisráðherra Bermúda; Jackie Jones, fulltrúi Bill and Melinda Gates Foundation; Chrissy Houlahan, þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings; Obiageli Oby Ezekwesili, stofnandi Human Capital Africa og School of Politics, Policy and Governance; og Birgir Ármannsson, forseti Alþingis.

Um Reykjavík Global Forum

Reykjavík Global Forum er árleg ráðstefna sem haldin hefur verið í Reykjavík frá árinu 2018 á vegum Women Political Leaders (WPL) samtakanna í samstarfi við ríkisstjórn Íslands. Hugmyndin á bak við ráðstefnuna er að búa til vettvang fyrir konur í leiðtogastöðum og annað áhrifaríkt fólk á ólíkum sviðum til að ræða lausnir á alþjóðlegum áskorunum. Í brennidepli eru kynjajafnrétti og valdefling kvenna. Fjöldi heimsþekktra leiðtoga hefur sótt ráðstefnuna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
17. apríl 2026

Hvernig stækkarðu fyrirtækið og einfaldar fjármálin?

Fimmtudaginn 16. apríl síðastliðinn hélt Arion banki vel sóttan fræðsluviðburð í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, þar sem bæði einstaklingar og fyrirtæki í rekstri fræddust um hvernig styrkja mætti fjármálahlið rekstursins.

Lesa meira
16. apríl 2026

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar

Í nýrri fræðslugrein á vef Arion, fara Ásgeir Bragason og Halldór Grétarsson, sjóðstjórar í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir erlendar sérhæfðar fjárfestingar Lífeyrisauka.

Lesa meira
15. apríl 2026

Arion banki gefur út nýja almenna viðskiptaskilmála

Arion banki hefur gefið út nýja almenna viðskiptaskilmála. Skilmálarnir koma í stað sex helstu eldri skilmála bankans þ.e. almennra skilmála innlánsreikninga, debetkortaskilmála, kreditkortaskilmála, netbankaskilmála, app skilmála auk almennra skilmála. Nýju skilmálarnir taka gildi 15. apríl 2026 gagnvart nýjum viðskiptavinum en 15. júní 2026 gagnvart núverandi viðskiptavinum.

Lesa meira
Konur heilli kynslóð á eftir körlunum - Arion banki