09.12.2025

Leið­beiningar til viðskipta­vina ef ferða­skrif­stofa miss­ir ferða­skrif­stofu­leyfi

Viðskiptavinir eiga rétt á að fá niðurfelldar ferðir endurgreiddar ef til greiðsluþrots ferðaskrifstofu kemur eða ef ferðaskrifstofa missir ferðaskrifstofuleyfi.

Til að fá pakkaferð að fullu endurgreidda þurfa eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:

  • Viðskiptavinur keypti pakkaferð eða samtengda ferðatilhögun af viðkomandi ferðaskrifstofu.

  • Þjónustuloforð ferðaskrifstofunnar var ekki uppfyllt, þ.e. ferðin var felld niður.

Athugið að Ferðatryggingasjóður tryggir aðeins endurgreiðslu vegna pakkaferða eða samtengdrar ferðatilhögunar en ekki vegna kaupa á stakri ferðatengdri þjónustu svo sem stökum flugmiða eða stakri hótelgistingu. Í slíku tilfelli getur korthafi gert strax endurkröfu á kortafærsluna á vef Arion banka.

Fyrst þarf að gera kröfu um endurgreiðslu í Ferðatryggingasjóð

Ef keypt var pakkaferð eða samtengd ferðatilhögun þá þarf fyrst að gera kröfu um endurgreiðslu í Ferðatryggingarsjóð í gegnum þjónustugátt á vef Ferðamálastofu og skila með kröfunni viðeigandi gögnum fyrir auglýstan lokaskiladag.

Ef Ferðamálastofa endurgreiðir ekki ferð að fullu sem viðskiptavinur Arion banka greiddi fyrir með debet- eða kreditkorti þá fást eftirstöðvar kröfunnar endurgreiddar í gegnum endurkröfuferli greiðslukortsins.

  • Endurkröfubeiðni þarf að fylla út rafrænt á vef Arion banka sem fyrst eftir að formlegt svar er komið frá Ferðamálastofu.

  • Aðeins er hægt að gera endurkröfu á þann hluta kortafærslunnar sem ekki fæst endurgreiddur í gegnum Ferðatryggingarsjóð hjá Ferðamálastofu.

Athugið að endurkröfuréttur í gegnum kortið fellur niður ef ekki er send kröfulýsing á Ferðamálastofu innan tilsetts tíma.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með rafrænni endurkröfubeiðni til Arion banka:

  • Ferðagögn (bókunarstaðfesting, reikningur, pakkasamningur o.s.frv.).

  • Formlegt svar frá Ferðamálastofu vegna óskar um endurgreiðslu.

Mikilvægt er að senda beiðni um endurkröfu til Arion banka sem fyrst og alls ekki síðar en 30 dögum eftir að formlegt svar fæst frá Ferðamálastofu til að tryggja að krafan falli ekki á tíma.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira